Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.09.1945, Qupperneq 5

Sameiningin - 01.09.1945, Qupperneq 5
165 og ills. Þess vegna er þörfin brýn, sér 1 lagi nú á þessum tímum, þegar vísindalegar uppgötvanir hafa tekið þeim undra framförum, að öllum öflum sé beitt til þess að hin nýja þekking, sem -hver uppgötvun hefur í för með sér, verði notuð til blessunar en ekki bölvunar. Andlegur þroski manna verður að taka jafn miklum framförum og vísindalegar uppgötvanir. -—■ Siðferðislegt þrek og kristilegt hugarfar verður að vera sterkara en hyggjuvit. — Á þessu sviði hefur hin kristna kirkju um heim allan undra hlutverk fyrir hendi. Atom-sprengjan hefur breiðsveiflað því boði um heim , gjörvallan: “Lærið að lifa í friði eða þér munuð deyja.” — Úlfúð og þrætur manna á milli eru sprottnar af sömu rótum og alheimsstríð. — Við lok þessa stríðs látum oss skilja kraft þessarar kenningar í hverri félagsheild, á hverju heimili, í hverju bygðarlagi, í hverju þjóðfélagi, í alheimi. Friður eða eyðilegging. Guð gefi oss öllum náð til að læra lexíurnar mörgu, sem stríðið, með öllum þess hörmungum, hefur fært oss. Hann gefi oss náð til þess að gera vorn litla skerf til að byggja hinn nýja heim. Látum oss ekki gleyma hinni miklu fórn, sem færð hefur verið til að sigur ynnist. — Látum oss ekki gleyma hinum dánu, hinum særðu, hinum, sem heim koma aftur, vér erum í stærri þakklætis skuld við þá alla en orð geta túlkað. Megi Guð vera syndugum heimi miskunsamur. Megi allar þjóðir gefa sig honum á vald, svo hans andi leiði þær á braut friðar og framfara um ókomnar aldir. Trúmenska safnaðarlýðs vors Erindi flutt á kirkjuþingi í Winnipeg 1945. Eftir séra Sigurð Ólafsson. Herra forseti, og háttvirta kirkjuþing: Sextíu ár sögu vorrar, sem kirkjufélag, liggja oss að baki. Engum af oss fær dulist að þetta eru mikilsverð tíma- mót. Úr þessum áningarstað er eðlilegt um að litast. En öllu öðru fremur lyftum vér þakklátum hugum til algóðs

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.