Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1945, Page 12

Sameiningin - 01.09.1945, Page 12
172 Lærisveinarnir eru annars hugar. Þá dreymir um jarð- neskan konungsljóma, sem muni einnig leggja á þá. Samræðurnar halda áfram. Meistarinn segir þeim í hverju Messíasartign hans sé fólgin: Mannssonurinn á að líða margt og honum verði útskúfað af öldungunum og æðstu prestunum og fræðimönnunum. Hann muni verða deyddur og rísa upp aftur eftir þrjá daga. Lærisveinarnir stara á hann. Þessu vilja þeir ekki trúa — geta ekki trúað. En fölva slær á.alla vordýrðina við Sesareu Filippí. Þá segir meistarinn þeim að þetta sé lífið sjálft, ekki aðeins fyrir hann, heldur einnig fyrir þá — alla, sem vilja fylgja honum, þetta: að þjóna, líða, deyja fyrir aðra, fórna sjálfum sér. Leiðin til að bjarga lífi sínu sé að týna því. Og aítur dregur ský fyrir sólu. í þytinum í skóginum heyrist eins og eilífðin duna, og Hermon verður altarið í óendanleg- um helgiljóma Guðs undir bláhvolfi himinsins. “Þú ert Kristur.” Það hljómaði eins og undiralda á leið- inni aftur til Damaskus. Við ókum á fleygiferð, og athyglin var minni en áður við að skoða landið. Við sjáum kirkjur með krossi á þaki í E1 Kuneitra og langar til að vera þar við tíðasöng, en þess er enginn kostur. Þegar norður kemur, sjáum við glöggt að nú er miklu bjartara en um morguninn. Fjalladalurinn blasir greinilega við, sá er skilur Hermon frá Anti-Líbanon, og féll í milli með stýfðum tindum. Annar fjalladalur klýfur Anti-Libanon að endilöngu, svo langt norður sem augað eygir. Þar austur af rís innan um önnur fjöll há strýta, rétt eins og þar væri Baula komin. Við nálgumst óðum Damaskus, og allt í einu minnumst við löngu liðins atburðar, sem slær nýjum ljóma á þennan sjóndeildarhring og hugsanir, sem Sesarea Filippí hafði vakið. Fólk er á ferð sunnan að, á sömu leið og við förum, lítill flokkur karlmanna. Einn er miklu svipmestur; þótt hann sé lágur vexti, er nærri því eins og hinir hverfi allir fyrir honum. Ennið er hátt og bjart og honum brennur eldur úr augum. Öðru hvoru líður yfir andlitið skuggi af áhyggjum og kvöl. Hann virðist vegmóður en sú þreyta er þó eins og ekki neitt hjá því sem þjáir hjarta hans. Hádegis- sólin skein í heiði. Hann strýkur hendinni um höfuð sér, það er líkast því sem hann sé að verjast óbærilegum þungum hugsunum og sárum minningum. Skyndilega leiftr-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.