Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1945, Síða 16

Sameiningin - 01.09.1945, Síða 16
176 hjarta þínu til að geyma hana þar sem enginn sér. Aug- lýstu ekki heldur fyrir mönnum hvað að er, því venjulega veita þeir enga hjálp. — Guð hefur hlustað á sorgarkvein mannanna barna frá upphafi vega, hann hefur hjálpað þeim að bera sínar byrðar — þangað tók postulinn Páll sínar byrðar. — “Þrisvar,” segir hann, “bað eg drottinn að taka byrðina,” — en þegar þessi þyrnir í holdinu var ekki tek- inn burtu ákvað hann að snúa þeirri byrði í blessun og hann þakkaði guði fyrir veikleika sinn, þannig var hann yfirskygður að krafti Krists. Þegar hann fann til veikleika síns var hann sterkastur. — Öll reynsla getur fyrir guðs náð gert þig styrkan. Að endingu — mig undrar stundum hvernig hvert og eitt af oss liti út, ef fólk gæti séð okkur eins og vér erum. Án efa yrðum vér víða fyrir sárum vonbrigðum, í öðrum tilfellum fyrir hinni mestu gleði. — Sumir ættu skilið að vera vísað í lægri sess, aðrir yrðu færðir upp á við — það er dýrmætt að alsjáandi auga Guðs hvílir á gjörðum allra. Leiðir vor allra liggja til guðs og það er áreiðanlegt að þegar vér höfum fundið hann munum vér ekki koma fram fyrir hann uppblásnir af hroka og mikilmensku yfir okkar miklu afrekum. Vér munum lúta höfði í auðmýkt. Vér megum líka vera fullvissir um það að hann mun þá taka burtu byrðina hver sem hún er; um það geta hinir endur- leystu borið vitni. Lauslega þýtt. Þá eik í stormi hrynur háa, hamra því beltin skýra frá; en þegar fjólan fellur bláa fallið það enginn heyra má; en ylmur horfinn innir fyrst 'urtabygðin hvers hefir mist. Hjónin Bjarni og Stefanía Jones í Minnesota, eru nú bæði gengin til hiratu hvíldar. Telst það líklega ekki með stórtíðindum mitt í öllu því sem yfir hefir dunið á þessu síðasta ári. En margir munu þó sakna þeirra hjóna.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.