Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1944, Qupperneq 11

Sameiningin - 01.03.1944, Qupperneq 11
41 hans og kynningu við hann; en annars ekki kostur, eftir ferðaáætlun þeirri er fylgja varð. Þau fáu ár er biskupinn hefir haft með höndum forystu á kirkjunnar málum hafa verið sérkennileg ár og örlaga- þrungin. Um stutta stund hafði hann á biskupsstóli setið, er ísland varð hernumið land; en með hernáminu kom nýr vandi, ný og áður óþekt straumhvörf, nýtt viðhorf í gjör- völlu lífi þjóarinnar; gætti þess einnig, og gætir, á sviði hinna andlegu mála. Með virkum bróðurhug og innsýni hins praktíska nú- tíma manns hefir biskupi auðnast að koma ýmsu til leiðar kirkjunni í hag, svo að hin andlegu mál virðast hafa numið land hjá íslenzkum safnaðarlýð almennara en fyr hefir átt sér stað. Gjafir almennings til kirkna og líknarstarfs eru miklu almennari en fyr, er það órækt merki aukins áhuga, en einnig orsakað af auði þeim hinum nýja, er nú á sér stað hjá íslenzku þjóðinni. Nýr áhugi til framkvæmda í kirkj- unnar málum er sýnilegur á mörgum sviðum. Biskupinn hefir beytt sér fyrir því að fá menn til að sameinast um grundvallar atriði trúarinnar, sem mest er um vert. En þar á hann einnig ágæta samherja innan kirkjunnar, svo sem hina þjóðkunnu og ágætu menn, þá prófessorana, Ásmund Guðmundsson og dr. Magnús Jónsson, er kenna í guðfræðisdeild háskólans og Reykjavíkur prestana þá dr. Bjarna Jónsson og vin vorn séra Friðrik Hallgrímsson dóm- prófast, og marga aðra. Kirkjuráðið er einnig ráðgefandi og mikilsverður aðili, kirkjunnar málum til honda. Kirkjublaðið, sem kirkjunnar menn hafði um dreymt, er nú orðið að virkilegleika, og er það gefið út með ábyrgð biskups. Með því er mikilsverð tilraun hafin til þess að bera mál kirkjunnar fram á vettvang allrar þjóð- arinnar. Sýnilegt er það, að Kirkjublaðið verður áhrifaríkt til þess að auka safnaðarstarfsemi; nefni eg sem dæmi fréttir um söngkórana, er nú birtast í blaðinu ásamt mynd- um af þeim. Samúð biskups er sýnileg með öllu því sem að vel er gert, ummæli hans um litlu söfnuðina á afskektum stöðum, um gömlu prestana er hafa látið af störfum og um öldruðu prestsekkjurnar sýna kærleiksríkan mann. Slík skilningsrík samúð, á gróðurmagn í sér fólgið. Eins og flestum mun kunnugt, var Sigurgeir biskup, prestur í ísafjarðarkaupstað (Eyri, við Skutulsfjörð), um

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.