Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1944, Síða 16

Sameiningin - 01.03.1944, Síða 16
46 Jóns Bjarnasonar er hann las mér eða sýndi. Bréf frá eldheitum penna séra Jóns fóru aftur heim. Aðrir hafa gert svipað, hver eftir sinni getu. Svo hefir alt er ritað hefir verið í blöðum og tímaritum borist á milli. Ekki höfum við altaf verið sammála. — Það er ekki neitt sérstaklega íslenzkt einkenni. En enginn skal af því draga þá ályktun að áhrif hafi ekki borist á milli. Þegar Jón Bjarnason þrumaði um “Island að blása upp” og íslenzkan níhilismus og Friðrik Bergmann í eldmóði æskunnar reif strigann á ástandi innan íslenzku kirkjunnar, kveikti það í mörgum heima. Menn urðu vondir, en upp úr rótinu kom nýtt líf og áhugi. —• Þegar aftur á dögum aldamóta guðfræðinnar að ýmsir leið- togar heima kaghýddu oss hér vestra fyrir þröngsýni og þekkingarskort, urðum vér vondir — en upp úr rótinu fékk rétttrúnaður vor nýjan blæ er deilurnar tóku að réna. Eitt- hvað hafði lærst á báða bóga í því að einblína ekki aðeins á það er milli ber, svo það hverfi er menn eiga sameigin- legt, heldur hefja það sameiginlega og meta. Saga hins lifandi sambands milli kirkju og kristni íslands og vor er að mestu leyti óskráð, en hún er afar merkileg. Vegna þess lifandi sambands og sem einn þátt þess, heillum vér komu þína hingað herra biskup, sem stórmerkan viðburð í sögu vorri. Að þekkjast er grundvöllur þess að meta. Síðast en ekki sízt fögnum vér komu þinni til vor vegna þess ágætis er þú sjálfur hefir til brunns að bera, sem kirkjuhöfðingi og leiðtogi íslenzkrar kristni. Orð hafði borist hingað vestur af ljúfmensku þinni og vaxandi vin- sældum, en sjón er sögu ríkari. Þú hefir komið, séð og sigrað hjörtu fólksins er á leið þinni hefir orðið. Síðan þú settist á biskupsstól hefir auðsætt verið öllum er nokkuð hafa fylgst með að þú hefir viljað tryggja bönd samúðar innan íslenzkrar kristni. Þér hefir verið ljóst að einungis þræðir velvildar bera hin heillavænlegustu áhrif á milli. Að í því efni hefir þú lagt traustan grundvöll og gert heppilega byrjun, getur ekki dulist. Þá hefir einnig áhugi þinn og framtaksemi komið ljóst fram. Útgáfa nýs kirkju- blaðs á liðnu ári undir þinni ritstjórn er einn vottur þeirrar elju er þú hefir sýnt og sýnir áhuga þinn að efla ekki “mátulega vel sofandi ríkiskirkju”, heldur vakandi og starf- andi kirkju er kann að horfast í augu við ástæður og hefir trú á möguleikum lífsins og mætti fagnaðarerindisins. Vér trúum því að þú munir eiga þá þrautseigju er f;il þess þarf

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.