Fréttablaðið - 02.03.2011, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 02.03.2011, Blaðsíða 2
2. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR2 HEILBRIGÐISMÁL „Mér sýnist að meðaldvalartími einstaklinga á Sogni sé um fjögur ár og meðal- aldur þeirra sem þar eru nú í kringum þrjátíu ár. Karlmenn hafa verið og eru í meirihluta.“ Þetta segir Sigurður Páll Páls- son, yfirlæknir á Sogni. Hann segir að frávikin geti verið frá minnst tveggja ára dvöl upp í átján ár. Í einstaka tilfellum hafi fólk dvalið þar ævilangt. Sigurður segir að á Sogni séu sjö pláss. Þau séu missetin eftir tímabilum. „Þess ber að geta að við erum með jafnmarga einstaklinga í eftir liti úti í samfélaginu. Þeir eru með skilyrðisdóma, þannig að veikist þeir eða geri eitthvað af sér, þá fara þeir aftur inn. Fjöldi einstaklinga á Sogni getur því breyst frá einni viku til annarrar.“ Sigurður segir að eigi einstak- lingur alvarlega hluti að baki fái hann oft svokallaðan rýmkunar- dóm hjá héraðsdómstól, sem heim- ili honum að hafa búsetu annars staðar. Slík heimild sé háð ströng- um skilyrðum um nákvæmt eftir- lit frá Sogni í tiltekinn tíma. Þetta eftirlit geti varað árum saman áður en einstaklingur fær svo- nefndan losunardóm, sem þýðir að hann sé metinn fær um að axla ábyrgð á lífi sínu og gjörðum í samfélaginu. Sigurður segir að miðað við hin Norðurlöndin þyrfti Sogn að hafa yfir að ráða tólf til átján plássum ef vel ætti að vera. „Einnig má setja spurningar- merki við staðsetninguna, því þegar fólk fer í endurhæfingu úti í samfélaginu höfum við engar deildir tengdar Sogni á höfuðborgar svæðinu, en það væri æskilegt.“ jss@frettabladid.is Meðaldvalartími á Sogni um fjögur ár Meðaldvalartími ósakhæfra brotamanna sem vistaðir eru á Sogni er um fjögur ár að meðaltali, að sögn yfirlæknis á réttargeðdeildinni. Meðalaldur þeirra sem þar dvelja er um 30 ár. Gunnar Rúnar Sigurþórsson var dæmdur til vistunar þar í gær. Gunnar Rúnar á Sogn Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem banaði Hannesi Þór Helgasyni í Hafnarfirði í ágúst á síðasta ári, var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness til að sæta öryggisgæslu á Sogni. Samkvæmt krufningarskýrslu hlaut Hannes tuttugu mismunandi sár, að minnsta kosti fimm skurði og fimmtán stungusár. Dánarorsök var blóðmissir vegna alvarlegra áverka á hjarta, lunga og hægra nýra, sem honum höfðu að líkindum verið veittir með hnífi. Gunnar Rúnar var dæmdur til að greiða foreldrum Hannesar hvoru um sig 1,8 milljónir í miskabætur, auk vaxta og verðtryggingar upp á 1,2 millj- ónir. Þá skal hann greiða unnustu Hannesar 1,2 milljónir króna. Þrír geðlæknar höfðu metið Gunnar Rúnar ósakhæfan og hættulegan, enda hefði hann lýst ofbeldisfullum hugsunum gagnvart fanga meðan hann sat í gæsluvarðhaldi. Í dómnum var því kveðið á um að hann skyldi sæta öryggisgæslu. Fjölskylda og aðstandendur Hannesar heitins sendu frá sér yfirlýsingu í gær, þar sem það var sögð óásættanleg niðurstaða að Gunnar Rúnar væri dæmdur ósakhæfur. Jafnframt var átalið að ekki skyldi tilkynnt um dóms- uppkvaðningu með fyrirvara. Á SOGN Gunnar Rúnar Sigurþórsson hefur dvalið á réttargeðdeildinni á Sogni að undanförnu og mun dvelja þar áfram. Jón Viðar, hefðuð þið ekki betur haldið ykkur á mott- unni? „Jú, mikið rétt, en maður veit ekki alltaf hvar mottan er.“ Slökkviliðsmenn biðu lægri hlut fyrir lögreglumönnum í íshokkíleik í tilefni ef upphafi átaksins Mottumars. Jón Viðar Matthíasson er slökkviliðsstjóri. DÓMSMÁL Tveir rúmlega tví- tugir menn hafa verið dæmdir í tveggja og tveggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykja- ness fyrir þátttöku í hrottalegri árás á 64 ára mann, eiginkonu hans og dóttur. Árásin átti sér stað í Reykjanesbæ. Annar mannanna, Axel Karl Gíslason, var dæmdur til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar, og hinn, Viktor Már Axelsson, í tveggja ára fangelsi. Annar mannanna var einnig dæmdur fyrir fjárkúgun eftir að hann reyndi að innheimta sím- leiðis skuld sem mennirnir töldu barnabarn mannsins í Reykja- nesbæ skulda sér. Maðurinn sem ráðist var á var að setja kornabarn dóttur sinnar inn í bíl fyrir utan heimilð þegar piltarnir réðust að honum. Var honum hótað lífláti með hnífi auk þess sem hann var kýldur í andlit og ítrekað sparkað í líkama hans og höfuð. Þeir spörkuðu einnig í konu mannsins og dóttur. Bræður Viktors og Axels hlutu einnig dóma í málinu. Annar þeirra var dæmdur fyrir að hóta lögreglumönnum og fjölskyldum þeirra lífláti. Hann var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi. Hinn var dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir aðild sína að þjófn- aði en hann rauf þar með skilorð. Axel og Viktor afplána nú fang- elsisdóm vegna þátttöku í Barða- strandarmálinu svonefnda þar sem ráðist var á aldraðan úrsmið og honum haldið föngnum á heim- ili sínu. - jss Ofbeldismenn úr Barðastrandarmálinu fá nýja fangelsisdóma: Dæmdir til fangelsisvistar fyrir hrottalega árás í Reykjanesbæ LÍBÍA, AP Liðsmenn Gaddafís virðast ekki ráða við þá stórsókn gegn uppreisnarmönnum sem Gaddafí sjálfur hefur ítrekað boðað. Í fyrrinótt réðust hersveitir og málaliðar á vegum Gaddafís á borgina Zawiya, sem er skammt frá höfuðborginni. Uppreisnar- menn voru þó ekki lengi að hrinda þeirri árás og fögnuðu sigri með því að gæða sér á sæl- gæti og svaladrykkjum. „Við óttuðumst loftárásir en af þeim varð ekki,“ sagði einn íbúa borgarinnar. Á hinn bóginn virðast uppreisnarhóparnir varla nógu skipulagðir heldur til að ráðast á Trípólí og ná henni úr höndum Gaddafís. Líbíu var í gær vikið úr mann- réttindaráði Sameinuðu þjóðanna fyrir ítrekuð mannréttindabrot gegn eigin borgurum. - gb / sjá síðu 6 Pattstaða komin upp í Líbíu: Árás hrundið og sigri fagnað SIGURVISS Börn voru látin veifa fánum uppreisnarmanna í borginni Nalut, skammt frá Trípólí. NORDICPHOTOS/AFP ALÞINGI Fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins í umhverfisnefnd hafa óskað eftir að Svandís Svavarsdóttir umhverfis- ráðherra rök- styðji ákvörð- un sína um staðfestingu verndar- áætlunar um Vatnajökuls- þjóðgarð. Vilja þeir að ráðherrann geri það á opnum fundi umhverfis- nefndar. Í verndaráætluninni eru ýmsar takmarkanir á útivist, umferð og veiðum innan þjóð- garðsins. Krefja sjálfstæðis- menn ráðherra meðal annars um upplýsingar um þar samráð sem hann hafði við helstu hagsmuna- aðila um málið. - bþs Verndaráætlun um þjóðgarð: Ráðherra rök- styðji ákvörðun Tvö hundruð sektaðir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði um helgina afskipti af rúmlega tvö hundruð ökumönnum sem gáfu ekki stefnuljós þegar við átti. Þeir eiga nú allir sekt yfir höfði sér. Lögregla fylgist þessa dagana sérstaklega með stefnuljósanotkun ökumanna. LÖGREGLUFRÉTTIR SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR DÆMDIR FYRIR ÁRÁS Viktor Már Axels- son og Axel Karl Gíslason. STJÓRNSÝSLA Ríkiskaup hafa aug- lýst eftir tilboðum í húseignir og 37 hektara land að Efri-Brú í Grímsnes- og Grafningshreppi. Húsakosturinn samanstendur af gisti- og þjónustumiðstöð og sambyggðu íbúðarhúsi, þremur parhúsum og tveimur íbúðarhús- um, samtals rúmlega 1.400 fer- metrar að stærð, auk útihúsa. Ríkið keypti Efri-Brú árið 2003 undir starfsemi Byrgisins. Þar var áður rekin ferðaþjónusta. Þegar Byrgið var lagt niður 2007 fékk Götusmiðjan aðstöðu að Efri- Brú. Á síðasta ári var starfsemi hennar leyst upp. Fasteignamat eignanna er rúmar hundrað milljónir og brunabótamat rúmlega 350 millj- ónir. - bþs Fasteignamatið 100 milljónir: Ríkiskaup aug- lýsa Efri-Brú SKÓLAR Samkvæmt tillögum sem lagðar verða fram í borgarráði á morgun er gert ráð fyrir að þrjátíu leikskólar verði sameinaðir í fjórtán og stjórnendum þeirra, leikskólastjór- um og aðstoðarleikstjórum, sagt upp en sumir endurráðnir í yfirmannastöðurnar að nýju. Hinum verður boðið að starfa áfram með aðrar starfsskyldur og lægri laun. Einnig er gert ráð fyrir að frá næsta hausti verði frístundaheimili, sem rekin hafa verið í grunnskólum, sett undir eina stjórn í skólun- um sjálfum en verði ekki stýrt annars staðar úr borgarkerfinu eins og nú er. Þá sameinast sex grunnskólar um þrjár yfirstjórnir. Þetta á við um Álftamýrar- og Hvassaleitisskóla, Borga- og Engjaskóla og Korpu- og Víkur- skóla. Í tveimur tilvikum á að sameina yfir- stjórnir grunnskóla og leikskóla. Þessar tillögur „starfshóps um greiningu tækifæra í lærdómsumhverfi barna í Reykjavíkur“ voru kynntar í menntaráði borgarinnar í þriðjudag. Borgarráð mun ákveða á morgun hvort tillagan verður send til umsagnar út í hverfin og skólana. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er samstaða innan borgarstjórnar með suma þætti þessarar áætlunar en ekki um aðra. Helst óttast menn að við breytinguna muni sumir af reyndustu starfskröftum leikskól- anna hverfa á braut á sama tíma og mjög stór árgangur leikskólabarna bíður þess að hefja skólagöngu sína. - gar Tillögur um hagræðingu í skólum Reykjavíkur lagðar fram í borgarráði á morgun: Sameining áætluð hjá þrjátíu leikskólum LEIKSKÓLABÖRN Talsverðar sameiningar verða í yfir- stjórn leikskóla borgarinnar samkvæmt tillögu starfs- hóps. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SPURNING DAGSINS Þegar þú vilt fá það besta út úr lífinu! Faxafeni 14 www.heilsuborg.is 60 ára og eldri Leikfimi fyrir 60 ára og eldri. Einfaldar æfingar, aðhald, stuðningur Komdu og vertu með! - Góður félagsskapur Mán og mið kl. 11-12 Lokað námskeið (4 vikur) Verð kr. 9.900.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.