Fréttablaðið - 02.03.2011, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 02.03.2011, Blaðsíða 6
2. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR6 NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN – HLÍÐASMÁRA 9 - 201 KÓPAVOGI - 544 4500 - NTV.IS SQL REPORTING SERVICES Upplýsingar og skráning: 544 4500 / www.ntv.is SQL REPORTING SERVICES 14. til 16. mars kl. 9-16. Verð: 147.000 kr. eða 3 MS leyfisdagar 3 daga námskeið þar sem farið er yfir uppsettningu á Reporting Services, notkun á þróunartólum í Reporting Services og viðhald Reporting Services lausna. Þetta námskeið hentar þeim sem koma að þróun, innleiðingu og viðhaldi á skýrslum og gagnavinnslu í SQL Reporting Services. Meðal þess sem farið er yfir er: » Þróunartól í SQL Reporting Services » Stofna og útfæra skýrslur » Stofna og meðhöndla dataset » Hönnun og útfærsla á skýrslum fyrir notendur » Útgáfustýring og áskriftir Learning Solutions Kennari á námskeiðinu er Grétar Árnason Microsoft ráðgjafi og reyndur fyrirlesari. Grétar hefur sinnt ráðgjöf og þjónustu hjá mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins um árabil og hefur mikla reynslu af þróun og þjónustu SQL BI lausna. NTV OG OPIN KERFI KYNNA: Frakkland: Tvær flugvélar sendar til aðstoðar uppreisnar- mönnum í Benghazi. Evrópusambandið: Vopnasölubann, frysting eigna og ferðabann á Gaddafí og félaga hans. Bandaríkin: Tilfæringar bæði her- skipa og flugflota til undirbúnings hugsanlegu hjálparstarfi eða jafnvel hernaði. Hald lagt á um 30 milljarða dala af eigum Líbíumanna. Bretland: Unnið að því að koma á alþjóðlegu flugbanni yfir Líbíu til að vernda almenning frá loftárásum Gaddafís. Þrýstingurinn á Gaddafí vex M I Ð J A R Ð A R H A F I Ð TÚNIS A LS ÍR EG YP TA LA N D L Í B Í A Flóttamenn: Meira en 110.000 manns hafa flúið Líbíu. SÞ segja þúsundir í viðbót koma til Egyptalands og Túnis á hverri klukkustund. Zawiya: Árás Gaddafís hrundið Sirt: Fæðingarbær Gaddafís Nalut: Spenna vegna ótta við árás Olíu- og gassvæði Olíu- og gasleiðslur Olíuhreinsi- stöðvar Á valdi Gaddafís Á valdi uppreisnarmanna 200 km Tobruk Al Bayda Benghazi Ajdabiya Misurata Tripólí Zuara Heimild: SÞ ©Graphic News LÍBÍA Aldrei þessu vant hefur alþjóðasamfélagið svonefnda verið nokkurn veginn á einu máli um nauðsyn þess að fordæma Múammar Gaddafí Líbíuforseta og beita þrýstingi til að koma honum frá völdum. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti um helgina bann við því að selja vopn til Líbíu og skip- aði aðildarríkjum Sameinuðu þjóð- anna að frysta hugsanlegar eigur Gaddafís og fjölskyldu hans. Öryggisráðið samþykkti einnig að fela Alþjóðlega sakamáladóm- stólnum í Haag að hefja rannsókn á því, hvort framferði Gaddafís gegn þjóð sinni undanfarið geti talist til glæpa gegn mannkyni. Leiðtogar Evrópusambandsins ætla að hittast á föstudaginn að ræða hvort grípa eigi til aðgerða gegn Gaddafí, en Evrópusam- bandið hefur þegar samþykkt bæði ferðabann til Líbíu og frystingu eigna helstu ráðamanna landsins. Þjóðverjar gengu lengra og hafa lagt til tveggja mánaða viðskipta- bann til að koma í veg fyrir að Gaddafí geti notað olíutekjur til að ráða til sín málaliða, sem fengju það verk að kúga þjóðina til hlýðni. Bretar hafa ásamt fleiri Evrópu- þjóðum unnið að því að flugbann verði samþykkt yfir Líbíu til þess að vernda íbúa landsins gegn hugs- anlegum loftárásum liðsmanna Gaddafís. Rússar tóku hins vegar af skarið í gær og sögðust ekki ætla að sam- þykkja slíkt bann, nema þá hugs- anlega með samþykki Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Bandarískir ráðamenn hafa sagt Gaddafí hafa misst allt tilkall til þess að stjórna landinu og skora á hann að láta af völdum. Banda- ríkin hafa sömuleiðis gert sig lík- leg til hernaðaraðgerða gegn Líbíu og meðal annars flutt tvö herskip sín á Miðjarðarhafi nær ströndum Líbíu. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur þó ekki tekið umræðu um flugbann á dagskrá og engar hern- aðaraðgerðir gegn Líbíu hafa held- ur verið ræddar í Öryggisráðinu. Atlantshafsbandalagið hefur lýst því yfir að engar hernaðaraðgerð- ir gegn Líbíu komi til greina án heimildar frá Sameinuðu þjóðun- um. gudsteinn@frettabladid.is Alþjóðasamfélagið hjólar í Gaddafí Sameinuðu þjóðirnar, Evrópusambandið, Bandaríkin, Bretland og fleiri Evr- ópuríki hafa samþykkt refsiaðgerðir gegn Gaddafí og skipuleggja enn frekari aðgerðir. Hernaðaraðgerðir virðast þó ekki inni í myndinni – enn sem komið er. MENNING Fyrsti aðgöngumiðinn í tónlistarhúsið Hörpu var seldur við hátíðlega athöfn í gær. Miða- sölukerfið sem átti að nota til að selja fyrstu miðana virkaði þó illa undir álaginu. Um hundrað manns enduðu með því að bíða lengi í röð, sem lá út úr anddyri Hörpunnar, áður en þeir gátu keypt miða. Verið var að selja miða á tvenna opnunartónleika Hörpunnar og óperutónleika með þýska tenórnum Jonasi Kaufmann. Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tónlistarstjóri Hörpu, afhenti fyrstu miðana klukkan tólf ásamt blómvendi í tilefni dagsins. Uppselt er á opnunartónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu 4. og 5. maí. Mikið álag var einnig á miðasölukerfi Hörp- unnar á netinu og gekk afgreiðsla þar afar hægt. - sv Fyrsti miðinn í tónlistarhúsið Hörpu seldur við hátíðlega athöfn í gær: Miðasölukerfið þoldi álagið illa FYRSTI MIÐINN KEYPTUR Ragnhildur Ósk Pálsdóttir Erwin varð fyrst til þess að kaupa aðgangsmiða í tónlistarhúsið Hörpu í miðasölunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ALÞINGI Meirihluti heilbrigðis- nefndar telur fyrirhugað nafn sameinaðrar stofnunar Lýðheilsu- stöðvar og landlæknisembættisins ótækt. Samkvæmt frumvarpi um sam- eininguna á stofnunin að heita Embætti landlæknis og lýðheilsu. Það telur meiri hlutinn ekki ganga upp, hvorki málfarslega né laga- lega. Leggur hún til að stofnunin heiti Landlæknir – lýðheilsa og að forstöðumaður hennar verði land- læknir en lögin um stofnunina beri heitið lög um landlækni og lýð- heilsu. Í nefndaráliti meirihlutans er lagt til að landlækni verði veitt- ar heimildir til skipunar fagráða og að svo verði búið um hnúta að skipun slíkra ráða verði ekki of þung í vöfum. Í umfjöllun um lýðheilsusjóð segir meirihlutinn að nauðsyn- legt sé að leita fleiri tekjustofna til fjármögnunar en gert sé ráð fyrir. Hluti áfengisgjalds og hluti af söluandvirði tóbaks rennur til sjóðsins. Komu upp hugmyndir um að lagt yrði sérstakt „tappagjald“ á gosdrykkjaflöskur sem renna myndi í sjóðinn. Tappagjald eða gjald af sætum drykkjum gæti til dæmis nýst vel til forvarna í tann- verndar- og manneldismálum. Ekki er þó lagt til að slíkt gjald verði tekið upp. - bþs Heilbrigðisnefnd segir fyrirhugað nafn nýrrar stofnunar ekki ganga upp: Heiti heldur Landlæknir – lýðheilsa HEILSUVERNDARSTÖÐIN Hið nýja embætti Landlæknir – lýðheilsa á að vera til húsa við Barónstíg. Ert þú góður kokkur? Já 67% Nei 33% SPURNING DAGSINS Í DAG Hreyfir þú þig reglulega? Segðu þína skoðun á visir.is ÞÝSKALAND, AP „Þetta er erfiðasta skref lífs míns,“ sagði Karl-Theo- dor zu Guttenberg þegar hann sagði af sér sem varnarmála- ráðherra Þýskalands í gær. Hann sá sér ekki annað fært en hætta í kjölfar mikillar gagnrýni sem hann varð fyrir eftir að upp- lýst var að hann notaði texta frá öðrum í doktorsritgerð sinni án þess að geta heimilda. Angela Merkel kanslari féllst með tregðu á afsögn Guttenbergs en lofaði hann jafnframt í hástert fyrir pólitíska hæfileika. - gb Þýskur ráðherra segir af sér: Stal texta fyrir doktorsritgerð KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.