Fréttablaðið - 02.03.2011, Síða 8
2. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR8
Fastus ehf. | Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
Iðnaðarþvottavélar og þurrkarar
fyrir húsfélög og aðra
stór notendur s.s. hótel
og þvotta hús.
Icesave III
- samningaleiðin eða dómstólaleiðin?
Arion banki býður til hádegisfundar um Icesave samninginn
fimmtudaginn 3. mars
Fundarsetning
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka.
Hvað er Icesave? Samningurinn - Samningsleysið
Jóhannes Karl Sveinsson, lögfræðingur hjá Landslögum,
sat í samninganefnd Íslands vegna Icesave III.
Icesave seen from the perspective of international financial markets; perception and implications
Andrew Speirs, framkvæmdastjóri hjá ráðgjafarfyrirtækinu Hawkpoint. Hann hefur 24 ára
reynslu af fjárfestingarbankastarfsemi þar sem hann starfaði hjá Morgan Grenfell, Deutsche
Bank og Hawkpoint. Sérsvið hans er að veita fjármálaráðgjöf í tengslum við fjárhagslega endur-
skipulagningu og skuldaaðlögun fyrirtækja, kröfuhafa og stjórnvalda um víða veröld.
Að lokinni framsögu verða pallborðsumræður
Auk fyrirlesara taka þátt Sigurður Hannesson, stærðfræðingur og fulltrúi InDefence hópsins og
Vilhjálmur Þorsteinsson, frumkvöðull og fjárfestir.
Fundarstjóri: Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka.
Fundurinn er haldinn í Arion banka Borgartúni 19 og stendur frá kl. 11:30 til 13:00.
Boðið verður upp á kaffi og meðlæti frá kl. 11.15.
Nauðsynlegt er að skrá mætingu á fundinn þar sem sætaframboð er takmarkað.
Skráning fer fram á vefnum www.arionbanki.is eða í gegnum þjónustuverið í síma 444 7000.
Au
glý
sin
gas
ími
1. Hvenær verða opnunartónleikar
tónlistarhússins Hörpu?
2. Hvar er bensínverð hæst í
Evrópu?
3. Hvar mun Big Lebowski hátíðin
fara fram um aðra helgi?
SVÖR:
1. 4. maí 2. Í Noregi 3. Í Keiluhöllinni
FÓLK „Ég var hræddust um hund-
inn, svo brá mér svolítið þegar ég
sá myndirnar eftir á. En þetta gekk
allt vel,“ segir Ólína Þorvarðar-
dóttir þingkona, sem var í vikunni
í fyrsta sinn hífð upp í þyrlu ásamt
áhöfn TF-LÍF. Skutull, hundur
Ólínu, var með í för.
Þyrluæfingin var á Arnarnesi
við mynni Skutulsfjarðar og var
tilgangur hennar að þjálfa útkalls-
hunda á Vestfjörðum í að vinna við
þessar erfiðu aðstæður. Verið var
að leggja lokahönd á þjálfun Skut-
uls og fleiri hunda hjá Björgunar-
hundasveit Íslands. Ólína er sjálf
björgunarsveitarkona til margra
ára.
„Það getur verið mjög erfitt
fyrir hunda að fara inn í hávaða-
sama þyrlu og halda ró sinni þegar
þeir eru hífðir upp,“ segir Ólína.
„Það má ekki koma niður á getu
þeirra í því að vinna verk sín og
finna týnda menn í framhaldinu.“
Fyrsta þyrluæfing Skutuls gekk
áfallalaust. Hann byrjaði þó að
brjótast um í sigvestinu rétt áður
en hann og eigandi hans voru hífð
upp í þyrluna. Ólína segir eðlishvöt
hundsins þá hafa tekið við þar sem
hann róaðist um leið og þau tókust
á loft.
Björgunarhundasveitin er sér-
sveit innan Landsbjargar og starf-
ar á landsvísu. Á fjórða tug hunda
eru í sveitinni, þar af um tuttugu á
útkallslista. - sv
Þingkona fer með leitarhundinn sinn Skutul á fyrstu þyrluæfinguna:
Ólína og hundurinn hífð í þyrluna
HÓPURINN MEÐ HUNDANA Ólína og fleiri þátttakendur í æfingunni með leitarhunda
sína. MYND/ÓLÍNA ÞORVARÐARDÓTTIR
LÖGREGLUMÁL „Fólk upplifir nú mikið örygg-
isleysi eftir að hér hefur verið lögreglubíll á
staðnum frá árinu 1966,“ segir Baldvin Guð-
mundsson, íbúi í Búðardal, en þaðan hvarf eini
lögreglubíllinn í gær til Borgarness vegna hag-
ræðingar.
Um miðjan febrúar voru Ögmundi Jónassyni
innanríkisráðherra afhentir undirskriftalistar
með tæplega 1.400 nöfnum þar sem áformunum
var mótmælt. Einn forvígismanna söfnunarinn-
ar, Sigurður Sigurbjörnsson, sagði að bágur
fjárhagur sýslumannsembættisins í Borgar-
nesi mætti „ekki bitna á almennum mannrétt-
indum og öryggistilfinningu Dalamanna og
nærsveitunga“.
Fulltrúar sveitarstjórnarinnar funduðu einn-
ig með ráðherranum. Þeir sögðu að á fundinum
hefði komið fram að engar ákvarðanir hefðu
enn verið teknar um málið. Sjónarmið Dala-
byggðar yrðu skoðuð áður en lengra yrði haldið.
„Ögmundur virðist bara hafa sett upp eitt-
hvert pókerfés á þessum fundi og nú er lög-
reglubílinn farinn til Borgarness,“ segir
Baldur, sem kveðst áhyggjufullur fyrir hönd
byggðarlagsins, ekki í síst í ljósi vaxandi
umferðar í kjölfar opnunar heilsársvegar
norður um Arnkötludal. Hann kveðst tala af
reynslu um aðstæður á svæðinu enda hafi hann
starfað sem sjúkraflutningamaður á árum áður.
„Þeir benda á að það séu áttatíu kílómetrar úr
Borgarnesi í Búðardal en ef þarf að fara út á
Skarðsströnd þá eru það orðnir 150 kílómetrar.
Það er einfaldlega allt of langt.“ - gar
Undirskriftir duga ekki til að halda lögreglubílnum í Búðardal eftir 45 ára viðveru:
Öryggistilfinning Dalamanna dofnar
BÚÐARDALUR Áfram verður lögregluvarðstöð í Búðar-
dal en hún verður mannlaus og lögreglubíllinn er
sömuleiðis horfinn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VEISTU SVARIÐ?