Fréttablaðið - 02.03.2011, Side 10
2. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR10
UMHVERFISMÁL Bæjaryfirvöld á
Ísafirði grunaði ekki að mengun
frá sorpbrennslunni Funa kynni
að vera heilsuspillandi fyrir íbúa á
svæðinu og til þess má leita skýr-
inga á því af hverju málið var ekki
kynnt sérstaklega fyrir íbúum á
svæðinu.
Kristín Linda Árnadóttir, for-
stjóri Umhverfisstofnunar, er
þeirrar skoðunar að það hafi verið
misráðið að fá undanþágu árið
2003 frá reglum um díoxínmeng-
un. Hún segir að stofnunin muni
almennt ekki mæla fyrir undan-
þágum í framtíðinni fyrir starf-
semi sem hugsanlega er meng-
andi.
Þetta var meðal þess sem kom
fram á fjölsóttum borgarafundi á
Ísafirði vegna Funamálsins fyrir
helgi. Fundurinn, eins og fyrri
kynningarfundur á Kirkjubæjar-
klaustri, var að frumkvæði sótt-
varnalæknis, Umhverfisstofnunar
og Matvælastofnunar.
Daníel Jakobsson, bæjarstjóri
á Ísafirði, lýsti málinu frá sjónar-
hóli bæjaryfirvalda. Kom fram
í máli hans að öllum hafi verið
ljóst að mengun frá Funa væri
óásættan leg en engan hafi grun-
að að það kynni að hafa áhrif á
heilsufar fólks. Hann hafnaði því
að upplýsingum hefði verið stung-
ið vísvitandi undir stól eða að fjár-
hagslegir hagsmunir hefðu verið
teknir fram yfir hagsmuni íbúa.
Hugsanlega hefði átt að kynna
betur að díoxín mældist tugfalt
yfir mörkum árið 2007, en það
hefði ekki verið gert í þeirri trú
að mengunin ógnaði ekki hags-
munum fólks. Hann sagði málið
ekki til fyrirmyndar og það hefði
átt að vera búið að finna lausn
á sorpmálum bæjarins. Daníel
lýsti áhyggjum sínum af því að
ímynd Ísafjarðar og Vestfjarða
hefði borið skaða af Funamálinu.
Ímyndina yrði að vinna til baka
með öllum tiltækum ráðum.
Haraldur Briem sóttvarna-
læknir útskýrði að rannsóknir
erlendis bentu eindregið til þess
að íbúar á svæðinu þyrftu engu
að kvíða varðandi heilsuspillandi
áhrif frá Funa. Mengunina bæri
hins vegar að taka alvarlega. Þess
vegna myndi sóttvarnalæknir
Vestfjarða annast rannsóknir á
þeim sem unnu í brennslunni og
fleira fólki á Ísafirði. Tekin verða
blóð- og sýni úr brjóstamjólk en
blý verður einnig mælt í hári eða
nöglum en díoxín er líklegt til að
finnast þar sem blý mælist.
Til stendur að taka jarðvegs-
sýni í Skutulsfirði og von á niður-
stöðum eftir tvo til þrjá mánuði.
Þá var skorað á bæjaryfirvöld að
greiða þeim bætur sem hafa orðið
fyrir tjóni.
Daníel bæjarstjóri segir að
bærinn muni axla þá ábyrgð sem
honum beri og vilji liðka fyrir, til
dæmis við að skipta út ónýtu fóðri.
svavar@frettabladid.is
Töldu reykinn
frá Funa ekki
heilsuspillandi
Mengun frá sorpbrennslunni Funa virðist meiri en
nokkurn sveitarstjórnarmann á Ísafirði grunaði og
bærinn mun axla ábyrgð sem honum ber. Áhyggjur
af ímynd Vestfjarða komu fram á íbúafundi vestra.
SORPBRENNSLAN FUNI Ekkert af innkölluðu díoxínmenguðu kjöti skilaði sér til
baka enda hafði allt verið selt neytendum. Talið er útilokað að neysla þess hafi haft
heilsuspillandi áhrif. MYND/HALLDÓR SVEINBJÖRNSSON
Harvard, Radissonblu, Hótel Saga
Fimmtudaginn 3. mars, kl. 8-10
Bæjarráð Hornafjarðar
og rekstraraðilar sorp-
brennslustöðvarinnar í
Svínafelli í Öræfum hafa
ákveðið að hætta starf-
seminni vegna umræðu
um mengun sem stafar af
sorpbrennslum. Flosalaug,
sem hefur verið hituð
með orku sem sorp-
brennslan gefur, verður
jafnframt lokað.
Hjalti Þór Vignisson,
bæjarstjóri á Hornafirði,
segir að íbúar í sveitarfélaginu hafi haft áhyggjur af umræðunni um mengun
frá sorpbrennslu síðan hún kom upp. Þegar var byrjað að ræða viðeigandi við-
brögð og lokun stöðvarinnar í Svínafelli sé niðurstaðan.
Sorpbrennslustöðin Brennu-Flosi í Svínafelli í Öræfum hefur starfað frá árinu
1993. Samhliða uppbyggingu brennsluofnsins byggði fjölskyldan í Svínafelli I
sundlaugina Flosalaug sem hituð var með orku frá brennsluofninum.
Hjalti segir að missir sé af lauginni því hún hafi verið mikilvægur hlekkur í
ferðaþjónustu á svæðinu. „En það er ekki hægt að líta framhjá því að það er
frekar þéttbýlt í Svínafelli og þessi umræða um mengun hefur valdið okkur
áhyggjum. Og fyrst við getum tekið á frekar einfaldan hátt tekið upp annað
kerfi í sorphirðu og sorpeyðingu þá var þetta niðurstaðan.“ - shá
Sorpbrennslu hætt í Svínafelli
ÚR FJÓSINU Mælingar á mjólk í Svínafelli sýndu að
hún stenst öll viðmið um heilnæmi. Myndin tengist
ekki fréttinni beint. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÁRBORG Eyþór Arnalds, for-
maður bæjarráðs Árborgar,
hafnar því að hafa sýnt hroka
og beitt hótunum í tengslum
við þverpólitíska samráðsnefnd
um sorpmál í sveitarfélaginu
eins og Helgi S. Haraldsson,
áheyrnar fulltrúi Framsóknar-
flokks í bæjarráði, fullyrti um
leið og hann sagði sig frá starfi
samráðsnefndarinnar.
Eyþór segir Helga sitja
sem áheyrnarfulltrúi í boði
Sjálfstæðis flokksins enda hafi
flokkurinn, sem er með meiri-
hluta í bæjar stjórn, veitt fulltrú-
um allra flokka seturétt í bæjar-
ráði. „Til þess er engin skylda
og heggur því hér sá sem hlífa
skyldi,“ segir Eyþór. „Samráð
tekur einfaldlega tíma og er eng-
inn hroki fólginn í því að benda á
það.“ - gar
Hafnar ásökun um hroka:
„Heggur sá er
hlífa skyldi“
RENNIR SÉR Á SANDBRETTI Það þarf
ekki snjó til að skemmta sér á skíðum
eins og ferðamenn í Síle fengu að
kynnast í vikunni þegar þeir renndu
sér á sandinum. NORDICPHOTOS/AFP
ALÞINGI Fjórir þingmenn úr Fram-
sóknarflokki og Hreyfingunni
hafa lagt fram frumvarp um að
fram fari rannsókn á aðdraganda
og orsök rekstrarerfiðleika og
gjaldþrots sparisjóða.
Er forseta Alþingis gert að
skipa þriggja manna nefnd til
verksins. Hliðstætt mál var lagt
fram á síðasta þingi en var ekki
rætt. Þá er í ályktun um skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis
kveðið á um að slík rannsókn fari
fram. Þeirri ályktun hefur ekki
verið fylgt eftir. - bþs
Framsókn og Hreyfingin:
Fall sparisjóða
verði rannsakað
ÍÞRÓTTIR Ísland tekur á þessu ári
þátt í heimsmeistaramótinu í
bridge. „Við höfum ekki verið með
síðan við urðum heimsmeistarar
árið 1991,“ segir Jafet S. Ólafsson,
formaður Bridgesambandsins. Þá
vakti heimsathygli sigur Íslands
í sveitakeppninni Bermuda Bowl
(Bermúdaskálinni).
Jafet bendir á að bridge sé eina
hópíþróttin þar sem Íslending-
ar hafi orðið heimsmeistarar, en
bridge var tekin upp sem Ólympíu-
íþrótt fyrir sjö árum.
Einar Jónsson, landsliðsþjálf-
ari í bridge, hefur með landsliðs-
nefnd, val ið
fjögur pör í
lokalandsliðs-
hóp fyrir þetta
ár. Núna fer
Bermúdaskálin
fram í Hollandi
í október.
Endanlegt
va l þr igg ja
para sem fara
á mótið fer fram í apríl, en meðal
paranna sem þegar hafa verið
valin eru þrír sem voru í heims-
meistaraliðinu 1991. Það eru Jón
Baldursson, Þorlákur Þorlákur
Jónsson og Aðalsteinn Jörgensen.
Bridge-geta Íslendinga er víða
umtöluð að sögn Jafets. Þannig
hafi fjárfestirinn Warren Buffet
fyrir nokkrum árum aftekið fjár-
festingar hér, en kvaðst vita það
eitt um landið að þar væru mjög
góðir bridge-spilarar.
„Hann sagðist stundum spila við
Íslendinga á netinu,“ segir Jafet.
Hið sama á svo við um milljarða-
mæringinn og stofnanda Micro-
soft, Bill Gates. „Og við erum ein-
mitt að reyna að fá þá hingað til
lands til að spila í janúar á næsta
ári.“ - óká
Bridgesambandið setur saman hóp til að keppa á heimsmeistaramóti í apríl:
Reyna að fá Buffet og Gates í bridge
JAFET ÓLAFSSON