Fréttablaðið - 02.03.2011, Síða 16
Ísland kemur alltaf á óvart
Í traustu tækniumhverfi
ALVOGEN
T PLÚS
Á tímum þegar orðið „landamæri“ er í raun
merkingarlaust þegar upplýsingatækni er
annars vegar, segir Rutz að vel fari á því
að hýsing og rekstur upplýsinga- og
tölvu kerfis Alvogen hafi fengið stað utan
Banda ríkjanna. Alvogen er alþjóðlegt lyfja-
fyrirtæki með skrifstofur í átta löndum,
þar á meðal Íslandi, og höfuðstöðvar
í New Jersey í Bandaríkjunum. „Við
erum jú alþjóðlegt fyrirtæki,“ segir Rutz.
„Fyrirkomulagið sem felst í samstarfinu
við Símann endurspeglar það fullkomlega,
bæði að takmarkanir af völdum landamæra
eru engar og um leið sýnir Alvogen að
það leitar uppi samstarfsaðila sem falla
vel að stefnu fyrirtækisins. Það er okkur
jafn mikilvægt grundvallaratriði að finna
réttu samstarfsaðilana eins og að finna
rétta starfsfólkið. Velgengni Alvogen veltur
einfaldlega á þessum atriðum.“
Lausn sem nær að vaxa með okkur
Alvogen er fyrirtæki í örum vexti og
kominn tími til að taka stefnumarkandi
ákvörðun um upplýsingakerfin. „Þetta var
í rauninni einfalt mál. Annaðhvort þurftum
við að bæta við okkar eigin búnað og þróa
hann áfram í takt við þarfir fyrirtækisins,
eða þá að ganga til samstarfs við aðila sem
svarar ekki bara kröfum okkar í dag heldur
hefur burði til að vaxa með Alvogen og
veita þannig þá þjónustu sem við væntum
til lengri tíma litið,“ bendir Rutz á.
Íslandsvinur og rúmlega það
Þegar talið berst áfram að Íslandi er auð-
heyrt að Joe Rutz er nú þegar Íslands vinur,
og rúmlega það. „Ég hef komið fimm
sinn um til Íslands og ég hreinlega elska
það. Allt við landið – náttúran og umhverfið
gera mig kjaftstopp í hvert sinn sem ég
kem, og þá ekki síður fólkið sem er alveg
einstaklega hlýlegt og vingjarnlegt.“ Rutz
fer allur á flug þegar talið berst að einni
heimsókn hans til landsins á síðasta ári.
„Ég var á landinu með konunni minni
þegar seinna eldgosið ykkar hófst, það var
magnað. Það er ógleymanlegt að verða
vitni að svona nokkru en sem betur fór
hafði það ekki áhrif á ferðatilhögun okkar.
Með hliðsjón af fyrri heimsóknum mínum
til Íslands er óhætt að segja að ég hlakka
til þeirrar næstu. Sem betur fer er ekki
langt þangað til að henni kemur, ég verð
á ferðinni í mars og bíð þess spenntur að
sjá með hvaða hætti Ísland kemur mér
á óvart að þessu sinni,“ segir Joe Rutz,
forstöðumaður upplýsingatæknimála hjá
Alvogen að lokum.
Þjónusta í þágu viðskiptavina
„Við erum verðbréfafyrirtæki sem sér-
hæfir sig í vörslu- og uppgjörsþjónustu
verðbréfa,“ segir Katrín. „Við bjóðum
upp á fjölmarga þjónustuþætti, allt frá
varðveislu verðbréfa fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og fagfjárfesta upp í daglegan
rekstur og umsjón verðbréfakerfa fyrir
fyrirtæki með stærri verðbréfaumsvif svo
sem banka og verðbréfafyrirtæki.“ Katrín
bendir á að T Plús leggi þunga áherslu á að
vernda hagsmuni viðskiptavina sinna. „Það
er því mjög mikilvægt að tækniumhverfið
sé traust,“ segir hún, en við uppsetningu
starfsemi T Plús leitaði fyrirtækið til Símans
varðandi tæknimálin.
„Í þessu sambandi er mjög gott að vita að
við séum í þjónustu hjá traustu fyrirtæki.“
Nýtur lífsins fyrir norðan
Katrín Ýr er sjálf ekki frá Akureyri heldur
alin upp fyrir sunnan. „Ég flutti hingað
ásamt fjölskyldunni árið 2007, og hafði
áhuginn á að komast sem oftast á skíði
talsvert að segja við ákvörðunartökuna,“
segir hún í léttum tón. „En mestu skiptir
að hér er ég að sinna starfi í takt við
menntun mína og starfsreynslu, hjá nýju
og spennandi fyrirtæki. Fjölskyldan nýtur
hér lífsins og það er ekki hægt að biðja um
meira.“
Í byrjun þessa árs var verðbréfafyrirtækið T Plús
stofnað Akureyri, eitt fárra slíkra utan Reykjavíkur-
svæðisins. Nýráðin framkvæmdastjóri T Plús er
Katrín Ýr Pétursdóttir.
Nýverið samdi lyfjafyrirtækið Alvogen við Símann
um rekstur og hýsingu tölvu- og upplýsingakerfis
fyrirtækisins. Joe Rutz er forstöðumaður upplýsinga-
tæknimála hjá Alvogen og mikill Íslandsvinur.
„Náttúran og
umhverfið gera
mig kjaftstopp“
„Fjölskyldan
nýtur lífsins hérna
fyrir norðan“
siminn.is 800 4000
Ábyrgðarmaður: Halldór Harðarson, texti: Jón Agnar Ólason, ljósmyndir: Gassi, Fréttablaðið, Auðunn Níelsson og úr einkasafni, hönnun og uppsetning: ENNEMM. ©Síminn 2011