Fréttablaðið - 02.03.2011, Síða 26
Land Rover mun afhjúpa dýrasta og íburðarmesta Range Rover í
sögu fyrirtækisins á bílasýningunni í Genf sem hefst í vikunni. Bíll-
inn ber heitið Range Rover Autobiography Ultimate Edition. Aðeins
500 slíkir bílar verða framleiddir í heiminum.
Um áramótin 2010 tók gildi ný
reglugerð sem skyldar alla öku-
nema til að sækja námskeið í öku-
gerði. „Fyrstu ökunemarnir komu
á námskeið á Kirkjusandi í maí
á síðasta ári,“ segir Einar Guð-
mundsson, forstöðumaður for-
varnasviðs Sjóvár.
Kennslan fer fram í svokölluðu
færanlegu forvarnahúsi. „Það er
flutningabíll með aftanívagni. Í
fremri vagninum er kennslustofa
og í þeim aftari veltibíll,“ segir
Einar, en hvert námskeið er í fimm
skipti.
Enn sem komið er hefur fær-
anlega forvarnahúsið aðstöðu
á þremur svæðum á landinu, á
Kirkjusandi í Reykjavík, á Ásbrú
í Reykjanesbæ og á Bakkaflugvelli
í Landeyjum. „Í vor er ætlunin að
bjóða upp á námskeið í Aðaldal við
Húsavík en síðan er ætlunin að
finna stað í hverjum landsfjórð-
ungi,“ segir Einar.
En hvað lærir fólk í þessum öku-
gerðum? „Við leggjum mikið upp
úr að ungmennin fái að upplifa
hvernig er að missa stjórn á bíl í
hálku og það gerum við í svoköll-
uðum skrikvagni. Þau verða sjálf
að finna út úr því hvað þau eru
að gera rangt og mörg eru hissa
þegar þau komast að því að það
eina sem virkar er að minnka
hraðann,“ segir Einar en
skrikvagninn má stilla
til að líkja eftir
mismun-
andi mik-
illi hálku,
bleytu
og möl.
Hann
áréttar
að ökunemum sé ekki
kennt hvernig aka eigi í hálku
heldur sé þeim sýnt hvernig forð-
ast megi slys. „Reynslan sýnir að
þeir nemendur sem fá plagg upp
á að þeir hafi lært að aka í hálku
ofmetnast og aka hraðar í hálku.
Við viljum heldur að nemarnir átti
sig á því hve lítið þarf til að missa
veggripið,“ segir Einar.
Í færanlega forvarnahúsinu fara
nemarnir einnig í veltibíl og finna
þannig hvernig beltin bjarga. Þeir
fá að fara í beltasleða sem líkir
eftir árekstri og prófa ölvunar-
gleraugu. „Allt þetta opnar augu
þeirra fyrir því hve miklu máli
skiptir að vera með fulla athygli
við aksturinn,“ segir Einar og vill
meina að slík kennsla í gegnum
upplifun sé áhrifa-
ríkasta leiðin til
að móta nýja
ökumenn. - sg
Upplifunin er
besti kennarinn
Færanlegt forvarnahús er kennslustofa á hjólum þar sem ökunemar
geta lært að bregðast rétt við mismunandi aðstæðum í umferðinni.
Færanlega forvarnahúsið ferðast á milli staða og kennir ungum ökumönnum hvernig bregðast eigi við óvenjulegum aðstæðum í
umferðinni. Í aftari vagninum er til dæmis að finna veltibíl en í fremri vagninum er kennslustofa.
FRÍ ástandsskoðunloftmæling oghjólbarða Í
MARS
Í skrikbílnum má sjá
hvernig bíll bregst
við í hálku.
Einar Guðmundsson,
forstöðumaður
forvarna-
sviðs
Sjóvár.