Fréttablaðið - 02.03.2011, Page 28

Fréttablaðið - 02.03.2011, Page 28
ÝMSIR ÍSKAFFIDRYKKIR FYRIR 4 Kælandi cappuccino 1½ bolli kalt kaffi 1½ bolli súkkulaðiís ¼ bolli súkkulaðisíróp eða súkkulaðisósa 1 bolli þeyttur rjómi Setjið kaffi, súkkulaði ís og síróp í blandarann. Þeytið þar til blandan er mjúk. Hellið yfir mulinn ís í fjögur glös. Skreytið með þeyttum rjóma og berið fram. Ísmolakaffi 1½ bolli kalt kaffi 2 bollar mjólk ¼ bolli súkkulaðisíróp ¼ bolli sykur Hellið kaffinu í ísmola- bakka og frystið í gegn, helst yfir nótt. Hellið öllum innihalds- efnunum í blandara og þeytið þar til blandan er mjúk. Hellið í glösin og berið fram. Ískaffi með vanillu 4 bollar nýlagað kaffi ½ teskeið vanillu-essens (má sleppa) ¼ bolli sykur ¼ bolli sjóðandi vatn 3 bollar mulinn ís ½ bolli rjómi Setjið kaffið í ísskápinn þar til það er orðið vel kalt, í um það bil 30 mínútur. Kælið fjögur glös. Setjið vanillu- essens og sykur út í sjóðandi vatnið og hrærið þar til það er uppleyst. Dreifið ískurlinu og kaffinu jafnt í glösin fjögur. Hrærið sykur/vanillu upplausninni út í ásamt rjómanum. Svalandi kaffidrykkir Fátt er betra en rjúkandi heitt kaffi, eins og við vitum öll, en kaffi er líka gómsætur og svalandi kaldur drykkur. Hér fylgja þrjár uppskriftir af köldum kaffidrykkjum sem koma skemmtilega á óvart og tilvalið er að bera fram eftir góða máltíð í stað eftirréttarins og heita kaffisins sem hefðin krefst. Kaffi nýtist í ýmislegt Til dæmis er gott að taka með sér nokkrar baunir þegar velja á ilmvatn. Gott er að þefa af baununum til að núllstilla lyktarskynið á milli þess sem ólíkir ilmir eru prófaðir. Gerðu fullkominn espresso heima hjá þér Vélarnar fást í Byggt og búið Kringlunni, Byko Akureyri, Epal Skeifunni, Hjá Jóa Fel Garðabæ og Holtagörðum og Kokku Laugavegi. Kaffið í vélarnar fæst einnig í verslunum Hagkaups og Fjarðarkaupum Hafnarfirði.Kaupauki: 2 espressobollar 2 cappuccinobollar Tilboð í mars Francis Francis X7 29.900 kr. Að búa til espresso er list. Til þess þarf 6,7 grömm af eðalkaffi, nákvæma tímasetningu, rétt hitastig og mátu- legan þrýsting. illy hefur hannað kaffivélar og kaffihylki sem hafa fullkomið vald á þessari list. Við köllum það Iperesspresso - aðferðina. Útkoman er ilmandi og bragðmikið kaffi með silkimjúkri áferð í hverjum einasta sopa.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.