Fréttablaðið - 02.03.2011, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 02.03.2011, Blaðsíða 40
Öruggari með 3G Sörfað við Sandvík Með golfið í símanum HARALDUR ÖRN PÓLFARI SIGURÞÓR HJÁ NIKITA MARÍA MARKAÐSSTJÓRI EDDU Sigurþór E. Halldórsson starfar sem veffor- ritari hjá Nikita Clothing. Umsvif Nikita eru heilmikil á heimsvísu og Sigurþór fer ekki varhluta af þeim hasar. En Sigurþór er líka þokkalega upptekinn utan vinnunnar – við ástundun jaðaríþrótta. Sörf á heimsmælikvarða „Jú, ég hef stundað ýmiss konar jaðarsport og þá helst brimbretti,“ segir Sigurþór. Jahá?! Er það sem sagt valkostur hér á Íslandi? „Já, algerlega. Hér við land eru nokkrir staðir sem bjóða upp á toppaðstæður og eru Ólafsfjörður, Þorlákshöfn og Sandvík við Grindavík meðal þeirra.“ Þegar Sigurþór er ekki á brimbrettinu taka við önnur áhugamál sem snúast sömuleiðis um útivist – á jaðrinum – eins og fjallahjólreiðar, snjóbretti og telemark-skíði. Alltaf í sambandi Það er alveg ljóst að Sigurþór sækir í útivist utan alfaraleiða. „Það er tvennt sem gerir það mögulegt. Annars vegar sú staðreynd að ég er alltaf í sambandi þegar á þarf að halda. Ég er með farsímann minn sem er alltaf í góðu sambandi og með langdræga 3G-netlyklinum er lítið mál að kíkja í fartölvuna og sinna því sem sinna þarf. Hins vegar eru það skilningsríkir vinnuveitendur sem vita jafnvel og ég að þegar aðstæðurnar eru upp á sitt besta er ekki hægt að bíða eftir því að skrifstofutíma ljúki – maður rýkur bara af stað og grípur augnablikið.“ Frá fjöllum til fjölskyldu Haraldur starfar sem lögfræðingur hjá Íslandsbanka og skartar því ekki Gore-Tex og gönguskóm daglega. Skyldi hann nokkuð hafa komist í sæmilega útivist undanfarin misseri? Pólfarinn hlær að spurningunni. „Nei, það er varla hægt að segja það. Ég hef eignast tvö börn á síðustu tveim árum þannig að það er í nógu öðru að snúast.“ Á toppnum í beinni Það vakti töluverða athygli þegar Haraldur fór fyrir 120 manna hópi á Hvannadalshnjúk sumarið 2010. Síminn nýtti þá 3G-tæknina og stóð fyrir beinni útsendingu af hæsta tindi Íslands. Hægt var að horfa á útsendinguna á netinu, sem vel á annað þúsund manns nýttu sér. Með hliðsjón af þessu má spyrja hvort Haraldur Örn noti símann mikið á fjöllum? „Maður er allavega áhyggjulausari með hann í farteskinu og það er staðreynd að þessi tækni hefur bjargað hér mannslífum. Hér áður fyrr var maður á nálum yfir því að ætt- ingjarnir færu að stressast ef ferða tilhögun breyttist og manni seinkaði en nú er auðvelt að ná sambandi og láta vita af sér.“ Náttúran og jarðsambandið Þegar áðurnefnd þrekvirki Haraldar er höfð í huga veltir maður fyrir sér hvort honum þyki nokkuð fútt í útivist hér á landi? „Jú, blessaður vertu. Það er rétt að fjöllin eru ekki tiltakanlega há en aðalatriðið í útivist er að komast úr daglegu amstri og ná jarðsambandi úti í náttúrunni – það er það sem þetta snýst um,“ segir toppmaðurinn Haraldur Örn. Komin með golfbakteríuna María B. Johnson, markaðsstjóri Eddu útgáfu, er í ört stækkandi hópi þeirra sem nýta sér sérstök smáforrit fyrir snjallsímann til að fylgjast betur með því hvernig gengur í hennar helsta áhugamáli, sem er golfið. „Ég byrjaði að spila golf 2006 og það er fátt eins frábært og að fara á völlinn í góðra vina hópi,“ segir María. „Samt er það nú svo að ég næ einhvern veginn aldrei að fara nægilega oft til að bæta skorið að neinu ráði,“ segir hún og hlær við. Allt í símanum Það var í fyrra sem María fékk liðsauka til að halda utan um árangurinn í golfinu. „Síðastliðið sumar sótti ég mér sérstakt golfforrit í símann minn og fór í framhaldinu að prófa mig áfram með að nota símann í golfinu. Smátt og smátt komst ég upp á lagið með þá margvíslegu möguleika sem forritið býður upp á. Þannig gat ég skoðað ýmiss konar gagnlegar upp- lýsingar um völlinn sem ég var að spila á, gat mælt vegalengdir að holu og svo auðvitað skráð skorið mitt beint í símann. Mér finnst alger snilld að geta haldið þannig utan um árangur sumarsins.“ Allskonar fyrir alla En það leynist ýmislegt fleira sniðugt í golf- forritinu fyrir þá sem taka sportið alvarlega, að sögn Maríu. „Fyrir gallharða golfara er svo hægt að skoða alls konar tölfræði en ég er hinsvegar meira að þessu til skemmtunar og er ekkert farin að lækka forgjöfina að ráði ennþá. Það breytir því ekki að þetta er skemmtileg viðbót við golfið, sem felur í sér margvíslegar upplýsingar og það er gaman að nýta sér tæknina sem er í boði.“ siminn.is 800 4000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.