Fréttablaðið - 02.03.2011, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 02.03.2011, Blaðsíða 49
21 FANNAR ÓLAFSSON verður frá næstu vikurnar vegna þumalfingurbrots. Hann missir væntanlega af síðustu leikjum KR í deildarkeppn- inni, sem og fyrstu umferð úrslitakeppninnar.sport@frettabladid.is HANDBOLTI Guðmundur Guð- mundsson hefur valið landsliðið í handbolta sem mætir Þýskalandi tvívegis, heima og utan, síðar í mánuðinum. Ólafur Guðmundsson, FH, og Sveinbjörn Pétursson, Akureyri, eru í hópnum nú en voru ekki með á HM í Svíþjóð. Hópurinn er þannig skipaður: Björgvin Páll Gústavsson, Hreið- ar Levý Guðmundsson og Svein- björn Pétursson markverðir. Aðrir leikmenn eru Alexander Petersson, Arnór Atlason, Aron Pálmarsson, Ásgeir Örn Hall- grímsson, Guðjón Valur Sigurðs- son, Ingimundur Ingimundarson, Kári Kristjánsson, Oddur Gret- arsson, Ólafur Guðmundsson, Ólafur Stefánsson, Róbert Gunn- arsson, Snorri Steinn Guðjónsson, Sverre Jakobsson, Þórir Ólafsson og Vignir Svavarsson. - esá Landsliðið valið: Sveinbjörn og Ólafur valdir Æfingaskór úr leðri með góðri dempun undir tábergi. Dömustærðir. Æfingabolir úr teygjanlegu DRYPLUS-efni með góðri öndun. Litir: Svartur, bleikur, blár. Dömustærðir. Æfingabuxur úr teygjanlegu DRYPLUS-efni með öndun. Dömustærðir. FÓTBOLTI Manchester United hefði í gær getað komið sér í ansi þægi- lega stöðu á toppi ensku úrvals- deildarinnar en tapaði þess í stað fyrir spræku liði Chelsea á úti- velli, 2-1. Forysta United er vitan- lega enn fjögur stig á toppnum en Arsenal, sem á nú leik til góða, getur minnkað forystuna í eitt stig um helgina. Meistararnir í Chelsea hafa ekki gert neinar rósir í deildinni að undanförnu eftir frábæra byrj- un á tímabilinu í haust. Þeir blá- klæddu voru meira að segja dottn- ir niður í fimmta sæti og áttu því á hættu að komast ekki í Meistara- deild Evrópu á næstu leiktíð, sem yrði mikið áfall. Það var því að duga eða drepast fyrir Chelsea og eftir að hafa verið undir í hálfleik sneru heimamenn leiknum sér í hag og urðu þar með aðeins annað liðið í vetur til að leggja Manchester United að velli. Chelsea byrjaði reyndar betur í leiknum og fékk ágæt færi í upphafi leiks. En gestirnir frá Manchester sóttu í sig veðrið og það var fylli- lega í takt við leikinn þegar Wayne Rooney kom þeim yfir með glæsi- legu marki á 29. mínútu. Varnarmenn Chelsea sváfu þá á verðinum. Rooney fékk boltann rétt utan vítateigs og fékk bæði pláss og tíma til athafna sig og skjóta föstu skoti neðst í mark- hornið nær. Carlo Ancelotti, stjóri Chel- sea, náði greinilega að telja kjark í sína menn í klefanum í hálfleik því strax á 54. mínútu voru heima- menn búnir að jafna metin. Brasil- íski varnarmaðurinn David Luiz var þar að verki með góðu skoti inni í teig. Ancelotti ákvað að stóla á þá Fernando Torres og Nicolas Anelka í fremstu víglínu í gær og er óhætt að segja að Torres hafi átt sinn besta leik fyrir Chelsea síðan hann kom frá Liverpool. En það færðist enn meiri kraftur í lið Chelsea þegar Drogba kom inn fyrir Anelka á 61. mínútu. Þessi kraftur skilaði marki rúmum tíu mínútum fyrir leiks- lok þó svo að vítaspyrnan sem Martin Atkinson dómari dæmdi hafi verið umdeild. Varamaðurinn Yuri Zhirkov var varla búinn að ná til boltans inni í teig United eftir sendingu Frank Lampard þegar Chris Smalling fór ansi klaufalega í fætur Rússans og felldi hann. Lampard skoraði af öryggi úr vít- inu og tryggði sigurinn. Chelsea gaf þrátt fyrir þetta lítið eftir á lokakaflanum. Í uppbótar- tíma neyddist fyrirliði United, Nemanja Vidic, til að toga niður Ramires sem var að brjóta sér leið inn að marki gestanna. Fyrir það uppskar Vidic sitt annað gula spjald og þar með rautt. Draumastaða United í hálfleik breyttist því í martröð í leikslok á meðan Chelsea fagnaði góðum og ekki síst mikilvægum sigri þar sem liðið er aftur komið í hóp efstu fjög- urra liða deildarinnar. Chelsea er þrátt fyrir allt tólf stigum á eftir United og á varla möguleika á að verja titilinn en getur í það minnsta bjargað tímabilinu með góðum lokaspretti. eirikur@frettabladid.is Meistararnir minntu á sig Chelsea vann í gær 2-1 sigur á Manchester United og kom sér þar með aftur í hóp fjögurra efstu liða deildarinnar. United er enn á toppnum en Arsenal getur nú minnkað forystu liðsins á toppnum í eitt stig. Leikurinn var góð skemmtun. SIGURMARKI FAGNAÐ Frank Lampard fagnar í gær sigurmarki sínu gegn Manchester United ásamt Didier Drogba, sem átti góða innkomu af bekknum í síðari hálfleik. NORDICPHOTOS/GETTY Aðrir leikir á Bretlandi Bikarinn: Everton - Reading 0-1 0-1 Jack Mills (26.). Brynjar Björn Gunnarsson lék allan leikinn fyrir Reading. B-deild: Portsmouth - Scunthorpe 2-0 Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn með P. C-deild: Hartlepool - Huddersfield 0-1 Ármann Smári Björnsson var ekki í hópnum hjá Hartlepool en Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan leikinn fyrir Huddersfield. C-deild: Bristol Rovers - Colchester 0-1 Matthías Vilhjálmsson var ekki í hópnum hjá C. Skotland: Hamilton - Hibernian 1-2 Guðlaugur V. Pálsson lék allan leikinn fyrir Hibs. ÚRSLIT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.