Fréttablaðið - 02.03.2011, Síða 50

Fréttablaðið - 02.03.2011, Síða 50
22 2. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR Leikfélagið setur nýtt met á föstudaginn þegar áhorf- endafjöldinn fer í fyrsta skipti yfir fimmtán þúsund manns. Þá verður haldin lokasýning söngleiksins Rocky Horror sem hefur verið sýndur í menning- arhúsinu Hofi frá því í fyrra við góðar undirtektir. Hingað til hefur Fló á skinni frá leikárinu 2007 til 2008 verið vinsælasta sýning leikfélagsins til þessa en það breytist á föstudaginn. „Þetta er alveg æðislegt,“ segir María Sigurðar- dóttir, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Aðspurð segist hún ekki hafa brugðist við þessari frábæru aðsókn. „Við erum reyndar í stærra húsi núna en nei, við vorum ekki örugg um það. Þetta er mjög ánægju- legt fyrir okkur.“ Stutt er síðan haldin var áhorfendasýning á Rocky Horror sem gekk eins og í sögu. Dagblöðum, ljósum og textablöðum var dreift um salinn og tóku áhorfendur virkan þátt í því sem fram fór. „Fólkið þurfti að setja dagblað yfir hausinn í ákveðnu lagi og kveikja á ljósi í öðru lagi. Það var mikil þátttaka og mikið sungið,“ segir María. Á meðal gesta voru fyrrverandi nemendur MH sem frumsýndu Rocky Horror fyrir tuttugu árum, þar á meðal Páll Óskar Hjálmtýsson. Eftir sýninguna kíkti hópurinn baksviðs og fór vel á með þeim og núverandi leikaraliðinu, sem saman stendur af Magnúsi Jónssyni, Eyþóri Inga Gunnlaugssyni, Bryndísi Ásmundsdóttur og Andreu Gylfadóttur meðal annarra. - fb Rocky Horror slær aðsóknarmet BAKSVIÐS Á ROCKY HORROR Leikararnir í Rocky Horror ásamt nokkrum áhorfendum eftir áhorfendasýninguna. MYND/ÞÓRHALLUR JÓNSSON Tískuhönnuðurinn John Galliano hefur verið rekinn frá tískuhúsinu Dior eftir að hann sagðist elska Hitler. Hinn heimsfrægi breski tísku- hönnuður John Galliano hefur verið rekinn frá tískuhúsinu Dior eftir að hann sagðist elska nasista- leiðtogann Hitler í myndbandi sem var gert opinbert í síðustu viku. Myndbandið var tekið upp á kaffihúsi í París þar sem hinn fimmtugi Galliano býr. Þar ræddi hann ölvaður við aðra kaffihúsa- gesti og sagði við eina konu sem var í hópi með Frökkum og Ítölum: „Fólk eins og þú væri dáið. Það væri búið að senda mæður ykkar og forfeður í gasklefann.“ Galliano hafði nokkrum dögum áður verið handtekinn af lögregl- unni eftir að par ákærði hann fyrir andgyðingleg ummæli á sama bar. Dómur hefur ekki verið kveðinn upp í því máli en hönnuð- inum hafði verið vísað tímabundið frá störfum hjá Dior vegna þess. Hitlers-myndbandið fyllti mælinn hjá fyrirtækinu, sem hefur núna rekið hann fyrir fullt og allt. Sidney Toledano, framkvæmda- stjóri Dior, hefur fordæmt hegð- un Galliano og segir að hún brjóti algjörlega í bága við þau gildi sem Christian Dior hafi staðið fyrir. Á sama tíma hefur lögfræðingur hönnuðarins vísað öllum ásökun- unum á bug. Galliano hefur starfað fyrir Dior í þrettán ár og þykir hafa gert góða hluti hjá fyrirtækinu sem yfirhönnuður. Núna þarf hann að hafa sig allan við ætli hann að lagfæra orðspor sitt og koma fót- unum undir sig á nýjan leik. Leikkonan Natalie Portman, sem hlaut Óskarinn á sunnudag fyrir hlutverk sitt í Black Swan, hefur fordæmt ummælin. „Ég er í miklu uppnámi vegna mynd- bandsins með ummælum Johns Galliano og mér finnst þau ógeðs- leg,“ sagði Portman, sem er and- lit ilmvatnsins Dior Cherie. Hún hefur oft klæðst fatnaði frá Dior á rauða dreglinum en á sunnu- dag valdi hún hönnuð sem starf- aði við Black Swan. „Í ljósi mynd- bandsins og sem manneskja sem er stolt af því að vera gyðingur vil ég ekki tengjast Galliano á nokk- urn hátt,“ sagði hún. „Ég vona að þessi hræðilegu ummæli minni okkur á að enn þarf að berjast gegn þessum fordómum sem eru í mótsögn við allt sem er fallegt í heiminum.“ Galliano hefur verið kjörinn hönnuður ársins í Bretlandi fjór- um sinnum. Tískuvikan í París hefst á föstudag og óvíst er hvaða áhrif brotthvarf hönnuðarins mun hafa á framlag Dior til hennar. freyr@frettabladid.is Hönnuður sem elskar Hitler Í SLÆMUM MÁLUM Breski tískuhönnuðurinn John Galliano á tískusýningu í París í janúar. Hann hefur verið rekinn frá tískuhúsinu Dior. NORDICPHOTOS/GETTY TRYGGIÐ YKKUR MIÐA Á WWW.SAMBIO.IS ÁLFABAKKA EGILSHÖLL V I P 10 14 14 16 16 16 16 16 L L L L L L L L L L L L L L 12 12 12 12 12 AKUREYRI KRINGLUNNI Nýjasta hasarmynd leikstjóra DISTURBIA og framleiðandans MICHEAL BAY. - R.C. “IRRESISTIBLY ENTERTAINING. WITTY AND HEARTBREAKING” BLOOMBERG NEWS, RICK WARNER “THE KING’S SPEECH SHOULD ON STAGE ON OSCAR NIGH THE WALL STREET JOURNAL, JOE MORGENSTERN NY POST, LOU LUMENICK NY OBSERVER, REX REED NY DAILY NEWS, JOE NEUMAIER NY OBSERVER, REX REED JUSTIN BIEBER-3D ótextuð kl. 5.40 - 8 - 10.20 I AM NUMBER 4 kl. 8 og 10.30 TRUE GRIT kl. 8 og 10.30 JÓGI BJÖRN-3DM/ ísl. Tali kl. 6 GEIMAPAR 2-3D M/ ísl. Tali kl. 6 SANCTUM-3D kl. 10.30 KING’S SPEECH kl. 5.30 - 8 JUSTIN BIEBER MOVIE ótextuð kl. 6 - 8 THE RITE kl. 10:10 SPACE CHIMPS 2 kl. 6 I AM NUMBER FOUR kl. 8 - 10:10 FRÁBÆR MYND UM LÍF JUSTIN BIEBERS, STÚTFULL AF TÓNLIST Hvernig varð saklaus strákur frá Kanada einn ástælasti tónlistarmaður í heiminum í dag ANTHONY HOPKINS SÝNIR STJÖRNULEIK Í ÞESSARI ÓGNVÆNLEGU SPENNMYND BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM JUSTIN BIEBER ótextuð kl. 5:40 - 8 - 10:20 THE RITE kl. 8 - 10:30 THE RITE kl. 6 - 9:20 GEIMAPARNIR 2 M/ ísl. Tali kl. 6 I AM NUMBER FOUR kl. 8 - 10:20 TRUE GRIT kl. 8 - 10:30 THE KING´S SPEECH kl. 5:30 - 8 - 10:30 YOGI BEAR-3D M/ ísl. Tali kl. 6 ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI M/ ísl. Tali kl. 5:50 WWW.SAMBIO.IS frá þeim s ama og færði okkur shrek M.A. BESTA MYND - BESTI LEIKARI IPHIGÉNIE EN TAURIDE Ópera Endurflutt kl. 6 THE RITE kl. 10 GEIMAPARNIR 2-3D M/ ísl. Tali Sýnd á morgun kl. 6 I AM NUMBER FOUR kl. 10:30 FROM PRADA TO NADA kl. 5:50 THE KING´S SPEECH Númeruð sæti kl. 5:30 - 8 ROKLAND kl. 8 KLOVN - THE MOVIE Númeruð sæti kl. 10:10 MÖGNUÐ HASARSPENNUMYND SEM ENGINN MÁ MISSA AF! THE MECHANIC KL. 5.50 - 8 - 10.30 16 THE MECHANIC Í LÚXUS KL. 10.30 16 HOW DO YOU KNOW KL. 5.20 - 10.35 L BIG MOMMA´S HOUSE KL. 3.30 - 5.40 L THE EAGLE KL.10.10 16 JUST GO WITH IT KL. 5.30 - 8 - 10.30 L BLACK SWAN Í LÚXUS KL. 5.30 - 8 16 GULLIVER´S TRAVEL 3D KL. 3.30 L ALFA OG OMEGA 3D KL. 3.30 L SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5% 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS T.V. - KVIKMYNDIR.IS -H.S.S.,MBL HOW DO YOU KNOW KL. 5.50 - 8 - 10.10 L BIG MOMMA´S HOUSE KL. 5.50 - 8 L JUST GO WITH IT KL. 10.10 L T.V. - KVIKMYNDIR.IS-H.H., MBL -H.V.A., FBL HOW DO YOU KNOW KL. 5.25 - 8 - 10.35 L BIG MOMMA´S HOUSE KL. 5.30 - 8 L 127 HOURS KL. 5.50 - 8 - 10.10 12 BLACK SWAN KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 THE FIGHTER KL. 10.30 14 GLERAUGU SELD SÉR THE MECHANIC 6, 8 og 10.10 BIG MOMMAS 3 5.50 JUST GO WITH IT 8 og 10.25 TRUE GRIT 5.50, 8 og 10.25 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar www.laugarasbio.is -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar MUNIÐ AÐGANGSKORTIN! Allt að 37% afsláttur MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS KVIKSETTUR (BURIED) (16) ANNAÐ ÁR (ANOTHER YEAR) (L) LONDON BOULEVARD (16) ÁSTARFUNI (IO SONO L’AMORE)(14) 18:00, 20:00, 22:00 17:40, 20:10, 22:40 18:00, 20:00, 22:00 17:50, 20:10, 22:30 CAFÉ – Lifið heil Lægra verð í Lyfju ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 36 71 0 2/ 11LipoSan Ultra 20% afsláttur Minni fita – færri hitaeiningar! Áður: 4.990 kr. Nú: 3.989 kr. Afsláttur gildir til 5. mars. Náttúrulega leiðin til að léttast. LipoSan er íslensk framleiðsla sem inniheldur kítósan, náttúrulegar trefjar unnar úr rækjuskel. Viðurkenndar rannsóknir benda til þess að trefjarnar bindi fitu, dragi úr hitaeiningafjölda og hafi auk þess góð áhrif á kólesteról.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.