Sameiningin - 01.04.1927, Qupperneq 13
107
um dr. R. F. Weidner. A'Örar bækur dr. Gerberdings voru flest-
ar vísindalegar og ætlaÖar til kenslu i gubfræÖaskólum.
í vikunni áÖur en hann dó lauk dr. Gerberding viÖ handrit
aö sinni síÖustu bók og er nú verið að prenta hana. Nefnir hann
bókina “Endurminningar áttræSs unglings'’ ýReminiscences of a
Youthful O'ctogenarian). Hlakka margir til þeirrar bókar, þeir
er þektu höfundinn.
Dr. Gerberding var tv-ígiftur. Fimrn börn hans' eru á lífi:
tveir prestar og þrjár prestskonur.
MeS dr. Gerberding er geginn til moldar einhver merkasti
maður lúterskrar kirkju í landi hér og sannur lærisveinn meistar-
ans góÖa frá Nazaret. —B. B. J■
Vorsöngur íslenzkra skálda.
^Brot úr fyrirlestri.j
Eftir Scra Sigurð Ólafsson.
Sóhlsk h fa ísiandsbörn löngum veriÖ talin, ljóSelsk eru þau
áreiðanlega, og okkur, sem erum af því bergi brotnir, finst sem
við íslendingar beggja megin hafsins séum vorsins börn, full af
útþrá og löngun eftir ljósi.
Bezti mælikvarði til að komast að þvi hvert sé höfuðeinkenni
einnar þjóðar er að skygnast inn í bókmentir hennar. Það eru
skáldin, sem eru söngvarar þjóðanna. Þeim er af guðsnáð gefið
að túlka tilfinningar þær, sem hreyfa sér í brjósti f jöldans, en sem
fjöldann skortir orð til að lýsa. Skáldin klæða í fagran búning,
láta koma í dagsljósið, þær hugsjónir, sem oft hafa hreyft sér í
brjóstum okkar, sem minna höfum magnið til flugs. íslenzka
þjóðin er víst ríkari að slíáldum en nokkur önnur þjóð, en hitt
mun og reynast satt að íslenzk alþýða tekur öðrum fram í þessum
efnum, kann og vel að meta ljóð. Má vissulega halda slíku á lofti
því að það, betur öllu öðru, sýnir þrótt og þroska þjóðarinnar í
bókmentalegu áttina.
Vorþráin er mjög sterkur þáttur i boðskap ísl. skálda, bæði
fyr og síðar. Og ekkert er eðlilegra en einmitt það. Hnattstaða
íslands á sinn þátt í þessu, afstaða þess og einangrun er því vald-
andi, að þrá eftir sól og sumri hefir verið djúpur strengur í sál
þjóðarinnar. Eengi vel var landið samgöngulaust við útlönd um
mikinn hluta ársins, — hinn langa og stranga vetur. Sumarið
breytti öllu þessu. Þegar sumardagurinn fyrsti gekk í garS, var