Sameiningin - 01.04.1927, Blaðsíða 28
122
páskagjöf. Sikömmu áður höfðu söfnuðirnir hækkað laun
hans. Er hvorttveggja þetta vottur um vinsældir prestsins
og höfðinglyndi Minnesota-manna.
Eins og getið hefir verið um í “Sam.”, hefir séra N. S-
Thorlaksson sagt af sér embætti í Selkirk og býst við að hverfa
þaðan seint í sumar. Söfnuðurinn hefir nú snúið sér til séra
Jónasar A. Sigurðssonar í Churchbridge og kvatt hann til
prestslþjónustu hjá sér. Er búist við, að séra Jónas taki
kölluninni,
“Bræðra-söfnuður” við íslendinga-fljót í Nýja íslandi á
fimtugs-afmæli þetta ár. Var stofnaður af séra Jóni Bjarna-
syni árið 1877. Er hann elztur safnaða vorra. Nokkrir þeir,
er áttu þátt í myndun safnaðarins, eru enn á lífi og hafa starf-
að dyggilega í söfnuðinum í hálfa öld. Blessi þá Drottinn nú
á æfikvöldi.
Biskup íslands, dr. Jón Helgason, er afkastamaður mikill
á sviði kirkjulegrar sagnfræði. Liggur þegar eftir hann meir
í þeirri grein, en nokkurn annan íslending fyr eða síðar.
Síðasta rit hans barst oss í hendur í dag (26. april). Er það
minningarit um Árna stiftprófast Helgason, sérprentun úr
Skírni. Er á þessu ári liðin hálf önnur öld frá fæðingu þessa
merkismanns. Vér þökkum biskupi kærlega þessa sendingu.
Þess hefir verið getið í “Sam.”, að séra Rúnólfur Mar-
teinsson hafi áformað að fara kynnisför til íslands í sumar.
Nú hefir blaðið frétt, að hann sé horfinn frá þeirri fyrirætlan
og sé væntanlegur til Winnipeg í júní og taki þá þegar við
forstöðu Jóns Bjarnasonar skóla.
Tilkynningar.
HEIÐINGJATRÚBOÐ.
Til safnaða og einstaklinga Hins ev. lút. kirkjufélags ís-
lendinga í Vesturheimi, og annara trúboðsvina: —
Það er kunnugt, að í mörg ár hefir kirkjufélag vort tekið
að sér að gjalda $1200 upp 'í laun trúböðans, séra S. 0.
Thorlakssonar í Japan. Hefir þetta verið öll þátttaka vor í
heiðingjatrúboðsstarfi. Þegar þetta byrjaði, átti kirkjufélag
vort ofurlítinn sjóð, er ætlaður var til trúboðs, og hefir af