Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1927, Síða 29

Sameiningin - 01.04.1927, Síða 29
123 honum verið tekið til að bæta við !það, sem árlega hefir inn komið, svo tillag vort næmi áðurnefndri upphæð. Nú er sá sjóður þrotinn, og á kirkjuþingi í fyrra vantaði til, að hægt væri að greiða fulla upphæð til starfs séra Octavíusar, nema þannig, að taka bráðabirgðalán úr kirkjufélagssjóði. Þó fanst miklum meiri hluta á þingi það sjálfsagt, að láta ekki styrk vbrn til Iþessa starfs fara minkandi, og var samþykt, að leggja $1200 til starfsins á iþessu kirkjufélagsári. Til þess að þessu verði fullnægt, þurfa enn inn að koma fyrir 1. júní næstk. um $1300. Er þá einnig jafnaður hallinn frá í fyrra. Eru það vinsamleg tilmæli til safnaða og einstaklinga, að gefa þessu gaum og leggja frm málefninu til stuðnings, svo þetta fáist. Allir söfnuðir kirkjufélagsins eru ámintir um, að sinna þessu með offrum við guðsþjónustur og á annan hátt, eftir því sem þeir sjá bezt henta. Einnig væri æskilegt, að sem flestir sunnudagskólar, kvenfélög, ungmennafélög o. fh, tækju að sér að liðsinna málinu. Og væntanlega verða margir einstakling- ar víðsvegar fúsir til að koma til hjálpar, svo upphæðin náist. Tillög ættu öll að vera komin til féhirðis fyrir 1. júní.. Glenboro, Man., 1. apríl 1927. K. K. Olafson, fors. k.fél. SUNNUDAGSSKÓLARNIR. Samkvæmt ráðstöfun kirkjuþinga, hefir það orðið að hefð nokkur síðustu árin, að tilnefna að vorinu einn sunnu- dag, er sérstaiklega eigi að vera helgaður sunnudagsskólamál- inu í söfnuðum kirkjufélags vors. Hefir þetta mælst vel fyrir og víða hepnast til arðs fyrir sunnudagsskólana. Hvernig þessu er til hagað, ræður hver einstakur skóli eða söfnuður fyrir sig. Takmarkið, að glæða áhuga fyrir sunnudagskólan- um, auka áhuga fyrir þeim, og gera þá sem bezt úr garði, að framast má. Samkvæmt ráðstöfun síðasta kirkjuþings, vil eg þá aftur á þessu vori tilnefna slí'kan sunnudag, og sé það sjötti sunnudagur eftir páska, Sem er 29. maí. Vöna eg, að tilgangi dagsins megi sem allra víðast verða náð, með því að glæða áhuga fyrir þessu mikla velferðarmáli, fjölga sunnu- dagsskóium og efla þá. K. K. ólafson, fors. kirkjufél. IvIRKJUÞING 1927. Fer.tugasta og þriðja ársþing Hins evan-gsliska, lút- erslcá kirkjufélags Islendinga í Vesturheimi, verður

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.