Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1918, Qupperneq 7

Sameiningin - 01.12.1918, Qupperneq 7
295 laus, þó samfoyg'ð þeirra væri öll með lýðveldisfylkingun- um brezku og frönsku og þeirra samlierjum. Það var orðin Iiefðardielgi þar að gefa sig e'kki við erlendum ófriði. En svo fór að þau þoldu ekki mátið. Það gat ekki dulist, að yrði afl mannréttinda og lýðstjórnar að falla fyrir bolmagni einveldisins í Evrópu, þá var með því frelsið, líklega að eilífu, gert útlægt úr heimi þesisum, og þá einnig úr Vesturheimi. Bandaríkin fundu sigíþví tilknúð að sker- ast. í leikinn, og ekki þarf í felur með það að fara, að ein sterkasta fivöt Bandaríkjanna var dæmi það, sem Canada hafði gefið, bræðra þjóðin norðan “línunnar.” Sam- hygðin með Canada og aðdáunin að fórnargjörð og hreysti Canada-hersins var sem keyri á systur ])jóðina fyrir sunnan að ganga í stríðið. Svo varð og. Og með því voru sameinuð öll aðal-öfl sjálfsforræðisins gegn sam- einuðu afli yfirdrotnunarinnar. Og nú er stríðið búið. Afl frelsisins vann algjörðan og ævarandi sigur. Og hæstum Ouði í himnuin sé lof og dýrð að eilífu! En kostnaðurinn? Hann reiknar enginn maður. Tölum vér um efnalegan tilkostnað og fé, sem í sölur var lagt, þá gerir hugurinn ekki annað en svima, þá nefndar eru tölur miljóna, biljóna og triljóna. Ekki heldur verða rústirnar í stríðslöndunum og eyðing listaverka til pen- inga metið. Ait er það þó smávægilegt til' samjafnaðar við þann tilkostnað mannlegs blóðs, sem úthelt hefir verið í stríði þessu sálu heimsims til lífs. Enginn hlutur hefir verið í iheimi þessum jafn dýru verði keyptur eins og frelsið, sem nú var veröldinni keypt til handa, enginn hlutur, neina eilíf sáluhjálp mannanna, sem keypt var með Guð's blóði á krossi. Miljónirnar, sem lagt hafa lífið í sölurnar, þúsundir ekknanna og tugir þúsunda mæðranna, táraflóðiu og hjartasárin, — engin mælistika mælir það dýpi isorganna, sem stríðið og sigurinn og frelsið unna liefir kostað. Alla sorgina, allan tilkostnaðinn, fáum vér all ekki metið. Ekkert mamdegt hjarta rúmar það alt. En vér þekkjum vora sorg, vorn tilkostnað. Og þó getum vér ekki annað en glaðst yfir því, að hafa átt vorn litla þátt í því að gráta heiminn úr helju. En þegar litið er á þessa hlið mátsins, er þess að gæta, að lífið alt er óslitin

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.