Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1918, Síða 9

Sameiningin - 01.12.1918, Síða 9
297 Eigum vér að liata þá? Eða eigum vér að fyrirgefa þeim og reyna að elska þá? Alclrei skal mælst til þess við kristna-menn, að þeir umberi eða fyrirgefi eða semji frið við þau djöfullegu öfl ofbeldis og þá stefnu kúgunar, sem barist var móti, hvar sem þau öfl láta ti'l sín taka. En mannfólkið í óvinalöndunum, sem blekt var af drotnum sínum og sjálft líður nú mest, það má ekki hata. Fyrir- iiða og frumkvöðla ofbeldisins getum vér nú rólegir afhent þeirri óskeikulu réttvísi, sem aldrei lætur að sér hæða og sannarlega mun ná tökum á keisaranum og þeim. sem honum eru mest meðsekir. Manni ógnar sá dómur, sem þeir menn hafa stevpt yfir sig og fá ekki umflúið. En almenningur allurí löndum þeim, sem strítt liafa móti oss, er nú aumstaddari en svo, að kristnum mönnum beri að hata hann. Súrastar dreggjar drekka þjóðirnar sjálfar, sem sigraðar eru, og nú byltast í blóði sínu Þegar eg lieyri talað um að hata ávalt Þjóðverja, fer lirollur um mig. Mér dettur í hug atvik, sem eg man vel eftir frá því að Bandaríkin áttu í stríðinu við Spán árið 1898. Það var í sjóorustunni við Santiago-de-Cuba, |>á spanska flotanum var eyt.t. Foringi á einu herskipi Bandaríkj anna var kapt. Philip. Hafðihann stjórn á skipi því, er duglegast revndist í orustunni. Það var eitt sinn, er sprengt var eitt spanska herskipið með stórskoti frá skipi hans, að liðsmenn hans tóku að„ æpa fagnaðaróp. Þá mælti hershöfðinginn, og eru þau orð í minni höfð: “Don’t shout, boys, the poor devils are dying.” (Æpið ekki, 1 >iltar, veslingarnir eru að drukna). Þetta var sami mað- ur, sem að loknu dagsverkinu og sigruðum flotanum spanska, kvaddi alla skipshöfn sína og stríðsmenn á þilfar, bað alla taka ofan, og þakkaði í heyranda hljóði almáttugum Huði af lirærðu hjarta fyrir sigurgjöfina. Ivapt. Philip var kristinn maður. Hugarfar svipað lians finst mér að nú eitt sæmi kristnum mönnum. Óvinirnir eru að drukna, sökkva í haf sundrungar, bjargarlevsis og alskonar hörmunga; en jafnframt reyna þeir að bjarga lífi sínu, reka öfl vonskunnar frá völdum, stofna lýðfrjáls- ar og.nýjar þjóðir. Þeir sem nú hafa anda Krists í sér, ættu að skoða það bæði heilaga skyldu og ljúfa, að koma nú til liðs þesisum aumstöddu þjóðum, kenna þeim og

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.