Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1919, Side 8

Sameiningin - 01.04.1919, Side 8
38 lieimilin, sein lienclur vinanna opnuðu fyrir honum, litlu börnin, sem oft komu hlaupandi á móti honum þegar hann ferðaðist úti í friðsælu sveitunum, eða kom til þorpanna, og mannfólkið, sem hann hafði liðið með blítt og strítt, Sjállfsagt hefir hann liaft auga fyrir plæging og sáning á vorin, virt fyrir sér jurtina, er 'hún lét sólina seiða sig upp úr frjórri moldinni og vöxt hennar síðar og ávexti, og svo loks uppskeruna. Unaður hefir honum víst verið að lijörðunum og hjarðmönnunum, og með fiskimönnunum hafði honum verið gleði að róa út á sjó- inn. Veröldin stóð hjarta lians nærri eins og oss, skin hennar og skuggar. Eln þar sem nú stundin er komin að hann skilji við þetta alt, þá safnar hann vinum sínum saman, kveður þá og segir þeim frá heimilinu og lífinu, sem nú taki við, og hvernig hann skuli muna þá og elska þá og fagna 'þeim í eilífðinni. Og vér, sem trúum því og treystum, að Jesús Kristur hafi A'erið í sérstökum skilningi sonur G-uðs, hann liafi verið útgenginn úr skauti föðurins, og í lionum hafi búið öll fylling gnðdómsins, vér höfum fyrir orð hans og dæmi þá fullnaðarsönnun fyrir ódauðleika og' eilífu lífi, að enginn 'hlutur er í augum vorum betur staðfestur. Því er það, að andi vor gleður sig í Guði frelsara sínum nú á upprisutíð náttúrunnar og sérstaklega nú á upprisu- hátíð sjálfs hans. Því Jesús lét ekki sitja við orðin tóm, þó þau ein væri fullnægjandi af því þau eru hans orð, og vér hefðum get- að trúað og verið rólegir, enda þótt hann hefði ekki vitjað mannanna aftur lifandi eftir píslirnar. En hann bætti dásemd á dásemd ofan, og svo allir lýðir mætti til að trúa, þá sýndi hann með verklegri framkvæmd, live áreiðanleg voru þau orð eilífs lífs, sem liann hafði talað, og með upprisu sinni frá dauðum sannaði hann öllum upprisu mannanna. M eð undrun og tilbeiðslu stöndum vér við opna gröf Guð-mannsins á páskunum. Dýrðar-undur upprisunnar vekur söng á hvrjum streng í hjarta þess, sem trúir. Sönnun er þar óyggjandi fyrir guðdómi Jesú Krists, og staðfesting er þar ótvíræð á kenningu hans. Hann er fyrir sjónum vorurn nú í guðlegri dýrð sinni, frel'sari

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.