Sameiningin - 01.04.1919, Síða 24
54
It grows and doth flourish, and e’er stronger it grows.
In tropical heat or in antarctic snows.
From blood of the Savior its power it gained,
And fertile and strong it has ever remained.
It ever keeps thriving, thouigh other trees die,
Its outspreading branches from pole to pole lie,
So rapid a growth from the first it has made
That soon the whole world may find rest in its shade.
The time is soon coming, when all heathen hordes
Will hie to the shelter this good tree affords;
The world from all weeds and from tares be made free,
The lopped limibs be grafted again on the tree.
How joyous and happy God's kingdom will be;
The whole world be resting beneath this great tree
And from its wide arches a temple be raised
Where God, by all mankind, in song shall be praised.
Nýjar biblíusögur.
Lengi hafa menn fundiö til þess, einkum þeir, er kenslu hafa
með höndum.í sunnudagsskólum, að brýn þörf væri á kenslubók
fyrir þær deiMir sunnudagsskölanna, sem taka viö börnunum, eftir
er þau hafa sinn ákveðna tíma notiö fræöslu af myndaspjöldunum,
sem nefnast “Ljósgeislar”, og áöur en 'þau eru því vaxin, aÖ byrja
nám í þeiin deildum, sem kenna á undan fer.mingu hinar yfirgrips-
meiri biblíusögur Klaveness eöa Tanks. Á síöasta kirkjuþingi var
séra Friörik Hallgrímssyni, skrifara kirkjufélagsins, faliö þaö vanda-
verk, að semja biblíusögur handa yngri deildum sunnudagsskólanna.
Tes.su verki hefir nú séra Friðrik lokið, og eru biblíusögurnar
komnar út, á kostnað kirkjufélagsins, og eru til sölu hjá ráðsmanni
útgáfunefndarinnar, hr. Jóni J. Vopna í Winnipeg. Þær kosta 40
cents.
Bók þessi er sérlega nytsamleg, eþki einungis fyrir börn í
sunnudagsskólum, heldur og til fræðslu á heimilum. Höfundurinn á
margfaldar þakkir skylið fyrir bókina. Sögurnar eru sagðar á
vönduðu íslenzku rnáli, sem er við hæfi barnanna. Þeir sem lesið
hafa það, sem séra Fr. H. hefir ritað mörg ár í Sameininguna “Fyrir
unga fólkið”, kannast við það, hversu áigætlega hann kann þá list,
að rita fyrir æskulýðinn. Hvar sem því verður við komið eru sög-
urnar sagðar með hinum einföldu orðuím ritningarinnar sjálfrar.
Sögurnar eru 34 úr gamla testamentinu og 46 úr nýja testamentinu,
allar stuttar. Sumum sögunum fylgja vers, sem ætlast er til að
börnin iæri.