Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1919, Qupperneq 25

Sameiningin - 01.04.1919, Qupperneq 25
55 Þakksamlega veröur bók þessi þegin af öllum og óefaö notuð alment og með góöum árangri. Vargur í véum. Skáldsaga eftir Gunnar Gunnarsson, í íslenskri þýSingu eftir Vilhj. i>. Gíslason. Útgefandi i>orst. Gíslason, Reykjavík. Bók þessi hefir send verið Sameiningunni til ílits og umsagnar. Alt, sem ikemur frá Gunnari Gunnarssyni, vekur eftirtekt, svo mikla viðurkenningu sem hann hefir hlotið um öll Norðurlönd fyrir skáldsagnalist. “Vargur í véum” gerist í Reykjavik í samtíð vorri. Aðal- persónurnar er.u Úlfur ('vargurinnj og séra Rjótur dómkirkju- prestur, faðir hans; Margrét og ráðherrahjónin, foreldrar hennar; Geir Thorgeir oig frú hans; Eldjárn skipstjóri; tlelgi Bjarnason JBrodd-HelgiJ ritstjóri; Sigvaldi Kárason, prófessor; og Gísli Torfason, bankastjóri. Úlfur er óreglumaður mesti og kemst hvað eftir annað í hendur lögreglunnar, en hann er að eðlisfari réttlátur maður. Ilt og gott berst um yfirráð yfir honum og veitir til skiftis hvoru betur. Það er með hann eins og Dr. Jeckyl og Mr. Hyde, að í honum eru tvær verur. . Skáldinu tekst vel að sýna eðlisfar mannsins og sálarstríð. Séra Ejótur dómkirkjuprestur er sem helgur maður. Með ódauðlegri föður-ást vakir hann yfir “drengnum sinum”, líður með honum og fyrir hann sárustu sálarangist. En verulega bjargað hon- um fær hann ekki. Margrét, unnusta, eiginkona og ekkja Úlfs fþví Úlfur fer í sjó- inn nýkvongaður) er væn stúlka og góð, en hiálf-óeðlileg virðist oss að ýmsu leyti saga hennar. Ráðherrann er rniðlungsmaður og ófær að gegna embættinu nema fyrir aðstoð mágs síns. þ>eir séra Ljótur hafa verið alda vinir, en ráðherra reiðist honum og skapraunar er prestur leitast við að sætta ráðherrahjónin við þau Úlf og Margréti, eftir að Mar- grét hefir gengið burt úr foreldra húsum til að fara til Úlfs. Þeir Brodd-Helgi og Sigvaldi prófessor eru ágæt sýnishorn þeirra stjórnmálagutlara, sem um ekkert hugsa nema “flokkinn” sinn. — En Eldjárn skipstjóri er göfugmenni. Svall'bræður Úlfs, Sveinn Ólafsson og Arngrímur Ávaldason, eru vel gerðir dónar í iheldri manna stétt. Skemtilegastur 'þykir oss Gísli Torfason, bankastjóri, mágur ráðherrans, sá sem raunar ræður öllu í stjórnmálunum, þó ekki beri á, vitur en harðvitugur stjórnmála-jarl, sem svo að segja flýgst á við sjálfan dauðann. Hann minnir svo notalega á Jetro Bass í Coniston Churchill’s. 'Þ'etta eru leikendurnir. En leikurinn er lífið, oftast ranghverfu megin. Sagan byrjar með átakanlega lifandi lýsingu á uppþoti á

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.