Sameiningin - 01.04.1919, Qupperneq 28
58
var fyrsti sunnudagsskóli í Kaupmannahöfn. Hét sá Axel Jacobsen,
er fyrir 'því gekst. Var þess hátíSlega minst í mörgum kirkjum
borgarinnar á þessum vetri.
í Bandaríkjunum eru 78 kristnir söfnuöir meSal Tapaníta er
þar búa. í þeim eru samtals 5,200 meðlimir. Þessir söfnuðir sýna
mikinn áhuga fyrir trúboSsstarfi meðal landa sinna á Ivyrrahafs-
ströndinni. Mörg kristileg blöS og tímarit eru gefin út af prestum
þeirra, og hafa mikla útbreiSslu.
Af starfsmönnum K. F. U. M. (Y. M. C. A.J í her Bandaríkjanna
féllu og særöust 57 ails, í stríöinu nýafstaöna.
FYRIR UNGA FÓILKÐ.
pessa deild annast séra F. Hallgrímsson.
S. Takashima.
Lúterskur trúboði í Japan.
Forfeöur hans voru af hermanna-('“samurai-”)flokknum. En
eftir Meiji-stjórnarbyltinguna 1848 var öllum aöalsmönnum gjört aö
skyldu aö taka sér einhverja atvinnu. Afi trúboöans, er hér ræðir
um, lagði fyrir sig kensiu og gjör'ðist kennari ungra manna í Tokio;
því starfi hélt hann áfram í Hyuga-héraði á Kyushu-eyju, er hann
flutti sig þangaö meS fjölsky-ldu' sína. Tengdasonur hans lagði
einnig fyr-ir sig kenslu, og um 46 ár fþangað til 1917) var hann
barnakennari í Nobeoka-þorpi. Kona hans vann eínnig aö barna-
kenslu meö honum 30 ár. Þar fæddist þeim 11. Nóvember 1880 S.
Takashima; auk hans eignuðust þau 4 dætur og 1 son.
I Japan er sá siður, að halda við í hverri ætt ættarnafninu og
virðingu ættarinnar kynslóð eftir kynslóð. Ef því ekki fæðist sonur
á einhverju heimili, þá taka hjónin sér kjörson og láta hann eiga
elztu dóttur sína. í Takashima-ættinni hafði þetta átt sér stað í 5
ættliöi áöur en S. Takashima fæcídist, því allan þann tíma haföi ekk-
ert sveinbarn fæðst í þeirri ætt. Afi hans hafði beðið þess viö
heimilisaltarið dag og nótt, og brent olíu í lófa sínum á meðan hann
baðst fyrir, að dóttir hans og kjörsonur mættu eignast son; og eins
og nærri má geta varö fögnuður mikill hjá gamla manninum þegar
þessi drengur fæddist.
Þegar Takashima var 15 ára gamall, fór hann að ganga í mið-
skólann í Miazaki, sem var 55 mílur frá þorpinu sem hann fæddist í.
Eftir þriggja ára nám þar, sendi faðir hans hann ti'l Tokio til fram-
haldsnáms þar. Hann vonaðist eftir því, að sonur sinn myndi í