Sameiningin - 01.09.1921, Síða 3
259
Jón Bjarnason, sem þá var forseti kirkjufélagsins.
Yígðist hann til fjögurra safnaða í Vatnabygðum svo
nefndum vestur í Saskatchewan — íslenzku bygðunum,
sem liggja í grend við vötnin Foam Láke og Quill Lalce,
fyrir vestan Yorkton. A því svæði hafði hann starfað
að heimatráboði í nokkur ár undanfarið og unnið að
myndun safnaðanna, sem hann gjörðist nú prestur hjá.
Þjónaði hann í fjögur ár á svæði þessu. Haustið 1912
flutti hann burt frá íslendingum og tók að stunda há-
skólanám af nýju, í það skiftið við Harvard-háskóla í
Massachusetts, elztu og fræguistu mentastofnun Banda-
ríkjanna. Frá þeim tíma höfum vér ekki greinilegar
sagnir af æfiferli hans, en hann mun hafa stundað þar
nám í tvo vetur eða fleiri og lagt fyrir sig guðfræði og
fornar bókmentir Grrikkja og Rómverja. Hann hafði ætl-
að sér að ná doktors-stigi í einverri grein þeirra fræða,
en varð að hverfa frá þeim ásetningi sakir fjárskorts og
heilsulbilunar. Nokkrum bata náði hann aftur — þótt
aldrei yrði heilsan sterk upp frá því — og tók þá þegar
að keppa að markinu, sem hann hafði sett sér. Var hann
öðru hvoru við' nám á háskólanum í Chicago, en vann
þess á milli við kenslu á ýmsum mentastofnunum. Á
síðasta hausti hafði hann verið vel á veg 'kominn með
doktors-námið; var þá búinn að viða að sér efni í rit-
gjörð, se'm af honum var heimtuð í sambandi við það
mentastig, og kominn að góðri kennarastöðu við Simpson
College í bænum Indianola í Indiana-ríki. Þar veiktist
hann hastarlega >og varð að láta af starfinu. Hvarflaði
hann þá aftur til landa sinna og ættfólks í Canada, sér
til hvíldar og heilsubótar. Svo virtist um tíma, sem heils-
an færi batnandi. En í öndverðum júní sló honum
snqgglega niður, er hann var staddur á gistihúsi í Glén-
boro, og lézt hann iþar eftir stutta legu. Andlátið var í
samræmi við æfiferil séra Runólfs á síðari árum. Hann
kvaddi heiminn einn síns liðs meðal ókunnugra. Jarð-
arförin fór fram á miðvikudag, 15. júlí, frá Fyrstu lút-
ersku kirkju í Winnipeg. Séra Björn B. Jónsson jarð-
söng. Lauk þar æfi þess manns, sem hefði getað orðið
*