Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1921, Blaðsíða 22

Sameiningin - 01.09.1921, Blaðsíða 22
278 “HvaS segirSu, pabbi? Má eg vera meS þeim ofurlitla stund?” “GjörSu eins og þú vilt, Pétur.” Einhver undarlegur hreimur var í rödd eldra mannsins, hreimur, sem gjörSi drengnum órótt innan brjósts. Hann sneri baki viö berjatrénu, eins og i leiðslu, setti niSur berjafötuna á skuggsælum staS og fór til hinna drengjanna. En fæturnir voru þungir, því a® uppreistin í hjartanu kulnaöi út um leiö og hann gjörði þaö, sem fööur hans var á móti skapi. “Hvað gengur að?” spurði Ben, ofurltiö styttri i spuna, en hann átti vanda til. “Liggur nokkuð á þessum berjum, eða hvað? En mig furðar nú reyndar ekkert á því, þótt þú viljir varla fara frá þeim. Þau eru ginnandi ,eg skyldi nú segja þaS, Kirsiberja-terta er minn uppáhalds-matur.’ Þeir sáu ekki framan í hr. Dill, því að runnana bar á milli,. en Pétur gat ekki gleymt svipnum á andliti föSur síns. Alt í einu flaug honum í hug, hve mörg ár faðir hans hafSi þurft aS erviSa, til þess að jækta aldingarðinn og koma upp þægilegu húsi, rúmgóSu fjósi og stórri súrheyshlöðu. Og árin höfðu tek- iS sinn toll i heilsu og kröftum líka, því aS faöir hans og móðir voru farin aS bogna í herSum lítið eitt við vinnuna, en þau kvörtuðu aldrei. Þau voru brautrySjendurnir, sem luku trúlega við byrjað verk. “Ben,” sagði Pétur og stansaði snögglega, “eg fer aftur til berjanna. Pabba ríöur mikið á því, aö þau komist á markaðinn á meðan þau eru í blóma. Eg læt hann enda fyrir mig of mörg verk. Eg—" “Ó, komdu, Pétur!” kölluöu Bert og Sidney báðir í senn. “Þú hjálpar föSur þínum miklu meira en nokkur annai drengur, sem eg þekki,” sagði Ben. “Þú ættir að mega létta þér ofurlítiö upp, einstöku sinnurn.” Eftir venjunni hefði Pétur átt aS láta tilleiöast og fylgja leiðtoga sinum auðmjúklega eftir. En nú fanst honum hariu sjá lýti á þessu átrúnaSar-goöi sínu. Ben hafSi slegiS á tinnuna í skapi félaga síns. Pétur tók undir eins svari föður síns. “Við unglingarnir erum alt of eigingjarnir. Við tökum upp léttari endann á öllum hlutum. Eg létti mér meira upp á einu ári,. heldur en faðir minn hefir gjört á allri æfi sinni.” “Ó-jæja, en tímarnir hafa breyzt. EeSur okkar hafa eins mikið gaman af vinnunni eins og við af leikjunum.” “Ef eg á að taka við af föður mínum, þá þarf eg að hafa gaman af vinnunni lika,” sagði Pétur og sneri sér viö. “Líttcr

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.