Sameiningin - 01.09.1921, Blaðsíða 17
273
meS þeirn starfskröftum og tækjum, sem fyrir hendi eru. En
reynt höfum vér aS ná til einstaklinga hér og þar, i von um betri
hag í nálægri framtið og meiri árangur.
Asuke er fagurt fjallaþorp meö 3,209 íbúum. Þar er sem
stendur endastöö trúboösins. í sveitinni teljast 33,371 menn,
sem aldrei hafa heyrt fagnaöarboöskap kristindómsins. IönaS-
ur þorpsins er einkum kolabrensla og silkiorma rækt. Áformið
var, aö ná til Asuke í hið minsta tvisvar í mánuöi og dvelja þar
tvo eöa þrjá daga í hvert skifti. En þetta hefir orðið fremur
undantekning en regla. Ekki hefir þó unnist tími til aö starfa
þar nema þrjá daga mánaðarlega. Um mánaöartíma dvöldu hin
aldurhnignu foreldri japanska prestsins, er oss tilheyrir, í trú-
boðshúsi þorpsins. Vitnuöu þau á kyrlátan 'hátt um frelsara
sinn og áunnu sér nokkura áhangendur.
Fjallaferöir á reiöhjóli hafa reynst helzt til erfiöar fyrir
prest þenna, og er trúboði yðar einnig farinn aö láta ásjá, — i
hi5 minsta að dómi konunnar hans. Kirkjufélagið íslenzka
hefir því lofaö aö sjá trúboösstöö þessari fyrir Ford bifreiö.*J
í þessu sambandi vil eg einnig geta um loforö hr. James og
konu hans, í Springfield, Ohio, er hétu aö gefa myndavél til
hagnýtingar við starfið. Báðar þessar gjafir veröa þegnar meö
þökkum og munu verða að miklum notum.
Toyohashi er borg með 62 þúsundum íbúa. Er þar her-
stöö, 45 mílur suðaustur af Nagoya. Landið umhverfis borgina
er gott til akuryrkju. Hrísgrjóna rækt og silkiorma er aöal-
iönaður á þeim slóöum. Trúboðsstarf vort í þeirri borg er enn
sem barn í reifum, ekki sízt vegna þess, hve oft trúboðaskifti
hafa þar átt sér stað. Þar höfum vér verið á stöðugum hrakn-
ingi hvað snertir samkomustað, og eigum sem stendur hvergi
athvarf. Til sveita hefir starfið gengið betur, eins 0g yfir höfuð
alt farand trúboð. í þrem sveitalþorpum hefir verið unnið kapp-
samlega. Um sumarmánuðina höfum vér bætt við einu þorpi.
Fyrir skömmu urðum vér þó að hætta starfi á þessum stöðum
fyrir skort á húsnæði. Þegar veður hlýnar, verður byrjað að
prédika á strætum úti unz húsnæði fæst aftur. Eeikprédikari
vor, er býr í bænum, byrjaði fyrir skemstu á trúboðsverki í tveim
smáþorpum út frá bænum, við aðal járnbrautina. Má vænta
góðs árangurs af starfinu á þessum stöðvum.
Auk hinna venjulegu sunnudags-guðsþjónusta, sem fara
*) Skömmu síðan en þetta er ritað, komst bifreiðin frá kirkjufé-
laginu íslenzka I hendur trflboðans.—N.S.Th.