Sameiningin - 01.09.1921, Qupperneq 7
263
Djart skin og blíðukvöld.
Matth. Joch.
Bjart skin o.g blíðukvöld
og boð um héðanför,
en hvorki sút né sorg-artjöld,
er set eg út minn knör.
Gjör Bléttan, Hrönn, þinn >hjúp,
)?að hæfir ferðum þeim,
er það, sem áður 61 þitt djúp,
skal aftur hverfa heim.
Kvöldfró og klukknahljóð
og kyrð við dagsins lát,
en hvorki sorg né sorgarljóð,
er set eg út minn hát.
Á brott frá banaStorð,
þó breytist tið og nöfn;
eg vona’ að sjá þann vin um borð,
sem visar mér á höfn.
Yfir brimgarðinn.
M. G. A.
Sólsetur, stjarna stök
og stund með boð til min!
Og ekkert kvein þá ómi’ I brims-
ins nið,
er eg hverf lands úr sýn.
En bylgjan hreyfist eins og svefns
á arm,
og engan veki hreim,
er það, sem upp af undra djúpi
steig,
snýr • aftur heim.
Kvöldfriður, klukknahljðð,
og kyr og þögul nótt!
Og engin tár né andvörp, þá á fley
eg enn stíg hljótt.
pví þó að berist langt frá stund
og stað
með straumum knörinn minn,
eg hafnarann minn sjálfan vona’
að sjá,
er siglt hef brimgarðinn.
Út yfir grandann.
Sig. Júl. Jóh.
Sólhvörf—og stjarna stök,
og stefnt er mér I för,
Við “grandann” hrygðar ómi’ ei
andartök,
er ýiti ég úr vör.
J>á hefjist alda eins o>g sofið brjóst,
þar ekkert brimsog hvin
er það, sem fyr af huliðs hafi bjóst
snýr iheim til sín.
Kveldró—og klukknahljóð,
svo kemur nóttin föl
Á kveðjustund ei streymi táraflóð,
er stíg á fjöl.
Pó tima’ og rúmi hverfi’ eg
hér af storð
um hulda regin-dröfn,
eg vona’ að finna farvin þann um
borð,
er fylgi mér í höfn.
Yfir Boðann.
J. A. S.
Sólarlag, stjarnljós stund
Og stefnuboð eg fæ!
En engan kveinstaf boðinn beri'
um sund,
Er burt eg legg um sæ.
I
Sem þokist aldan þrungin svefns-
ins ró
I þagnar kyrran geim,
Eins það, sem áður ðmælt ajúp
við bjó,
Snýr aftur heim.
Kvöldskuggar, klukkuhljóð, —
pá koldimm, þögul storð!
Ei stillið hrygðarstreng í kveðju-óð,
Er stíg um borð.
pótt rúms og tíma strönd eg firr-
ist frá,
Er flóðaldan mig ber,—
Minn hafnsögumann sjálfan mun
eg sjá,
Er sigldur boðinn er!
Ávítur fá meira á hygginn mann en hundrað högg á heimsk-
ingja— Orðskv. 17, 10.