Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1921, Page 20

Sameiningin - 01.09.1921, Page 20
276 inni, al-klyfjaðir körfum, skjólum og öSrum ílátum, út i kirsi- berjagarSinn aftan viö hlöðuna. “Hvað áttu eiginlega viö, drengur minn?” spuröi faðir hans. “Ó, eg veit það ekki vel,” sagði drengurinn hikandi; “þaö er aö segja, eg get ekki lýst því almennilega, en alt sem Ben seg- ir, þaö tö'kum við allir gott og gilt. Þaö er eins og hann sé fæddur leiötogi.” “Ó, já, eg hefi tekið eftir því, og stundum hefi eg velt því fyrir mér, — hvort hann leiddi ykkur alt af í rétta átt.” Bería Dill talaöi orðin eins og hann byggist ekki viö svari. Berjagarður Dills var fagur á að líta og björgulegur, trén voru hlaöin blóðrauðum berjaklösum upp í topp. Hann var því arðvænleg eign og kom í góðar þarfir, því aö Bería Dill lagöi hart á sig aö komast úr skuldum, sem hann hafði tekið x arf eftir föður sinn. “Ef við getum komið þessum berjum frá oklcur eins fljótt og þeir Gray og Martin báðu um, þá verður tíu ára fargi létt af herðunum á mér,” sagði Dill ánægjulega um leið og þeir byrjuðu að tína af neðstu greitiunum. “Eg ætla að vinna mér til frægðar í dag,” sagöi Pétur, eftir að hann var búinn að keppast við óvenjuvel í hálfan tíma. “En það væri óskaplega hart aö segja nei, ef Ben og drengjahópur- inn kæmi og bæði mig að korna með sér til að fiska. Heyrðu, Pabbi! — Hvað myndir þú segja, ef eg fleygði frá mér öllu saman og færi með þeim?” “Ekki neitt — nema eg gæfi þér annað nafn,” sagði faðir nans stillilega. “Annað nafn? Hvað áttu við?” Pétur hætti alt í einu að tína og stóð grafkyr með handfylli af berjum yfir fötunni. “Þú veizt hvað Pétur þýðir,” sagði faðir hans og hélt áfram vinna. “Það þýðir klettur, en ekki fífu-dúnn í vindi.” Pétri varö hálf-gramt í geði út af einhverju, sem honum fanst hann heyra í málrómi fööur síns. Einu sinni eöa tvisvar haföi faðir hans látið í ljós álit sitt á æskulýðnum í Pottersville. “Það vex upp án þess að leggja nokkuð á sig, unga fólkið hérna —lætur foreldrana bera allar byrðarnar. Og — það sem verra er, — eftirlætið er svo mikið, og dekrið og þægindin, að ung- lingarnir kunna ekki aö verjast áföllum_, þegar þeir þurfa að sigla sinn eigin sjó. Og þó er þeim lagt alt upp í hendurnar, svo að segja. Við eldra fólkið höfðum nóg aö þreyta við, en

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.