Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.09.1922, Qupperneq 3

Sameiningin - 01.09.1922, Qupperneq 3
259 hún er nú, skírnarjátning í grísku kirkjunni á miðöldum, en rómverska kirkjan amaöist fremur ■viS henni. 4. Ágsborgar - játningin. Ágsborgar-iátningin, eöa Augustana, er eins og kunnugt er, ahal sérjátning 'lúterskra manna, og raunar undirstaða :allra játningarita mótmælenda kirkjudeildanna. Hún varö til á sjálfri siöbótar-tíSinni og er samin af frumherjum siSbótar- innar sjálfum. Áöur en hún var lögö fyrir ríkisþingið í Ágs- borg áriö 1530, fullgerö, haföi hún verið um tveggja ára skeið að myndast í höndum siöbótar-frömuöanna út af deilum viö andstæöinga þeirra. Á þeim árum voru trúmálafundir haldnir þrásinnis, og voru þá lagðar fram trúfræðagreinir samdar meö mikilli vandvirkni. Eru máttarviðir Ágsborgar- játningarinnar teknir úr þeim greinum. Er sagan í stuttu máli á þessa leiö: a) Marborgar - greinirnar. — Eundur var ihaldinn í Marborg dagana 1.—3. okt. 1529. Leiddu þar saman hesta sina, ann- arsvegar Lúter og hans menn, en hinsvegar Zwingli og hans fylgjendur, frumherjar “endurbættu” stefnunnar í siðbótar- hreyfingunni. Lögðu þeir lútersku fyrir fundinn 15 greinir sinna fræöa og nefnast þær Marborgar-greinir. b) Schwabach - greinirnar. — Annar fundur var haldinn í Schwabach 16. s. m. Þar lögðu lúterskir fram 17 greinir, er siðan eru við þann stað kendar. Eru það Marborgar-grein- ir auknar og endursamdar. c) Schmalkalden greinirnar.—Enn var fundur haldinn 20. okt. 1529 í Schmálkálden út af ágreiningi siðbótarmanna við kaþólsku kirkjuna og sín á milli sjálfra. Voru þar lagðar fram af hálfu lúterskra sömu játningargreinir og í Schwabach áöur. dj Torgau-greinirnar. — 20. marz 1530 er fundur mikil! haldinn i Torgau. Eru þar enn bornar fram hinar fyrri játri- ingargreinir um böfuðatriði trúarinnar, en í viðbót riýjar greinir um “ósiðina” kaþólsku. Nefnist þessi nýi greinaflokkur T orgau-greinir. Upp úr þessum greinum er svo samin sjálf Ágsborgar- játningin. Schwabach éSchmalkalden) greinirnar eru lagðar til grundvallar fyrir sjálfum trúfræðagreinunum, sem eru að tölu 21, en Torgau-greinirnar eru grundvöllur greinanna sjc um ósiöina. í greinum þeim öllum, sem nefndar hafa verið, mun Lúter sjálfur hafa átt aðal-kjarnan. En þegar til þess kom að leggja

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.