Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.09.1922, Qupperneq 6

Sameiningin - 01.09.1922, Qupperneq 6
262 semdum lærdómum, sem koma í bág við heilaga ritn- ingu, hefir verið hrundið.” Ætlunarverk játninganna er því hvorki þaS, að vera 'ög mál né drottinvald yfir samvizkum og skilningi manna, .heldur vitnisburður um trú þeirra, er þær hafa aöhylst, og sýnishorn þess, hvernig lærdómar ritningarinnar hafa verið útskýrðir á ýmsum tímum. III. GILDI JÁ TNINGANNA. í meðvitund kristins manns skipa játningar kirkjunnar að sjálfsögðu veglegt sæti. Enginn sá, er alvarlega hugsar um trú- mál og ber kærleika til kristindómsins, lítilsvirðir trúarreynslu fyrri kynslóða og vitnisburS þeirra, er veriö hafa leiðarljós! í kirkju Krists. Kristur hét því lærisveinum sínum, að heilagur andi skyldi leiða þá í sannleikann, og sjálfur hét Drottinn þv:. að vera meö kirkju sinni alla daga. Andi Drottins hefir leitt mennina í meiri og meiri sannleika og hjálpað þeim til að skilja dásemdir opinterunarinnar. Fyrir þaö ber kristninni að þakka Guði, eins fyrir því þó viðurkenna verði, að skilningur mann- anna hafi veriö og sé enn að ýmsu leyti ófullkominn. Á hinn bóginn græöa ekki trúarjátningarnar á því, að þeim sé eignaö algildi eða sé taldar óskeikular. Og vantrausts yfirlýs- ing er það á Guði og kenningu Krists að ætla, að Drottinn hafi nú tekið heilagan anda frá kirkjunni og leiði mennina ekki !eng- ur í leit þeirra að sannleikanum, né upplýsi skilning þeirra nú sem fyr eftir jrörfum og kröfum mannsandans. Því verSur ekki neitað, aö játningar fornkirkjunnar eru að formi til steyptar í því móti, sem hugsun núlegrar tíðar ekk’ unir sér í á sama hátt og heimspekileg hugsun fyrri alda. Þar er þó postullega trúarjátningin algjör undantekning. Á heniii er alls ekkert heimspekilegt sniS, og yfirburða einkenni hennar er það, að hún fylgir einföldum oröum ritningarinnar sjálfrar og færir manni kjarna nýja testamentisins í fáum og skýrum setningum. Þess vegna samrímist hún bezt hugsun manna á öllum öldum. Hinar fornkirkju-játnigarnar tvær eru mjög mikið rnótaö- ar af griskri heimspeki. Fyrir það ,fá þær tignarlegan svip. En hinar gömlu háspekilegu tilraunir til þess að gjöra grein fyrir yfirskilvitlegum ("metaphysiskurrO efnum taka huga manns ekki lengur föstum tökum. Tilraunir þeirra játninga t:l þess aS útskýra eöli og eiginleika guðdómsins, samband og

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.