Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1922, Blaðsíða 7

Sameiningin - 01.09.1922, Blaðsíða 7
263 gagnskiftileg áhrif persóna guödómsins og Krists-eölanna tveggja o. f 1., hafa þau einkenni grískrar heimspeki, sem meir voru i metum höfö í fornöld en nú' á dögum. Og þrátt fyrir tignarklæöi og kraft hugsunarinnar getum vér ómögulega felt oss nú t. d. viö fordæmingar þær, sem í Athanasíus.ar-játning- unni eru kveönar upp yfir öllum þeirn, sem á annan hátt skilja kenningar ritningarinnar en þar segir. Hreinskilnislega skulum vér og kannast við þaö, aö vér skoðum ekki heldur Ágsborgarjátninguna lútersku óskeikula né förum aö öllu leyti eftir' henni. Nokkur dæmi megum vér nefna sem sýnishorn þess, að vér ekki getum farið þar <Htir bókstafnum; enda ekki til þess ætlast. 1. Ágsborgarjátningin er þýzk aö uppruna, og er þar sumt, sem einungis á viö þá þjóö og þaö ástand, sem mótaöi orðalag og búning játningarinnar í byrjun. Keisaravaldinu er veitt lotning. Þess er krafist, aö messan fari fram á þýzku og latínu. Höfundarnir geröu ráö fyrir, að nokkuö af messunni væri ávalt á latínu, en héimtuöu jafnframt leyfi til aö prédika á þýzku. Viö viljum fá að teljast jafn-lúterskir fyrir það, þj vér notum hvorki þýzku né latínu — né hyllum keisarann. Þaö er andinn, en ekki bókstafurinn, sem vér fylgjum. 2. Fjórtánda grein Ágsborgarjátningarinnar bannar strang- lega leikmanna-prédikun. Við viljum mega teljast jafn lút- erskir fyrir því, þó kristinn leikmaður fengi að boða Guðs orö í kirkju. 3. Níunda grein Ágsb.játningarinnar verður naumast 5ðr t vísi skilin en svo, aö hún kenni þaö, aö þau börn glatist, sem deyja óskírð. Aö sönnu hafa sumir reynt að skýra greinina á annan veg, en varla tekist. Enda fundu guöfræðingarnir Þ’l þess þegar á 17. öld, aö það ákvæði varð aö leiörétta.Sjálfur Jóhann Gerhard varö til þess að semja þá umsögn um betta efni, sem síðan gildir í lúterskri guðfræði: “Ekki vöntun sakra- mentanna, heldur fyrirlitning fyrir þeim fordæmir.” 4. í 11. gr. og 24. gr. er rætt um skriftir þeirra, er til alt- aris ganga. Skriftir eru taldar sjálfsagðar og heimuleg aflausn hvers og eins áöur en honum er 'veitt sakramentið. IJklega gildir þessi regla hvergi í söfnuðum vorum. Erum vér þá að því leyti lítið lúterskir, ef fara ætti nákvæmlega eftir orðum og bókstaf játningarinnar. 5. Ágsborgarjátningin kveður upp fordæming þdamnamus • yfir þeim, er halda fram kenningunni um þúsund ára ríkið (mill- enium-kenningunni). Undir þann dóm kæmu ekki svo fáir

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.