Sameiningin - 01.09.1922, Qupperneq 9
265
Vestur að Kyrrahafi.
Eftir séra K. K. Olafson.
VIII. California.
(iNiöurl.J
Eg bjó í Y;M.'C.A. fK.F.U.M.J meöan eg var í borginni.
Var þaö hinn ákjósanlegasti gististaöur, og vil eg hvergi vera
fremur til heimilis í ókunnugri stórborg en þar. En annars
mátti heita, aö eg væri alt af gestur íslendinga í horginni þá
fimm daga, sem eg dvaldi þar. Frímann Kristjánsson, er áö-
ur var að Akra í Noröur Dakota, rekur húsgagnaverzlun i svo
stórum stíl, aö eg efast um að nokkur fslendingur í Ameríku geri'
önnur eins viöskifti. Var hann óþreytandi að leiöbeina mérr
aka meö mig um borgina og sýna mér alla þá risnu, sem hugs-
anlegt var. . Haraldur Sigurösson, er býr meö móöur sinni Odd-
rúnu, var lika alt af boðinn og búinn aö flytja mig um borgina.
Stefán Johnson, Sumarliði Sveinsson og fólk Sigurðar heit.
Andersons, alt frá Winnipeg, gerði alt sitt til aö gera mér dvöl-
ina ánægjulega. Eins og líka Siguröur Guömundsson, bróðir
Gunnars J. Guömundssonar og þeirra systkina. Er hann eflaust
fróðastur allra núlifandi íslendinga um Ingersolb Svo var eg
svo heppinn aö á Y.M.C.A. bjó íslendingur, er eg áður þekti,
hr. Viggo Sölvason, sem nú kennir i fræösludeild herstöðvanna
í San Francisco. Var mér mikil ánægja 'og uppbygging aö vera
meö honum. Tvo íslenzka lækna hitti eg í borgin'ni, sem báöir
eru upprunnir úr mínu prestakalli í Norður Dalcota. Annar er
dr. Kristbjörn Eymundsson frá Pembina. Er hann viö St.
Francis spítalann. Konu hans, Oiddnýju, sá eg einnig. Hinn
læknirinn er dr. Sigríður Thordarson og er hún viö bamaspitala
borgarinnar. Var mér meir en lítil ánægja að hitta þessa
gömlu vini. — Við St. Francis spitalann er annar fslendingur,
Einar Oddsson að nafni. Hann ■ er tengdasonur Davíös Öst-
lund. Fæst hann við aö taka X-geisla myndir. — Flesta íslend-
inga í borginni mun eg hafa séð, og munu þeir vera 25 til 30
talsins. Fjögur börn skírði eg meöan eg stóð þar við.
í Berkeley er háskóli California rikis. Er sá bær innan viö
San Francisco fjöröinn og eru Oakland og Berkeley raunar ein
heild, nema hvaö borgarstjórn snertir. Mér veittist sú ánægja
aö vera á mjög vönduðum konsert, er Scandinava félag við há-
skólann stóð fyrir. íslendingur er formaöur þess félags, hr.
Stefán Bjarnason. Er hann útskrifaður af Wesley College í