Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.09.1922, Side 15

Sameiningin - 01.09.1922, Side 15
271 Mormóna stóS yfir, og var Tjaldbúðin ("Tabeniaclej alskipuS fólki. Fengum viS þar að heyra hið mikla pípuorgel, sem er það þriðja í röðinni að stærð í öllum heimi. Sáum musterið að utan, stjórnarbyggingu rikisins, o.s.frv. Borgin er einkenni- leg mjög, og mun hverjum ferðamanni unun að því. að skoða sig þar um. — í Sioux City, Iowa, skildum við Stigur. Hann hélt áfram heim, en eg skrapp til Vermillion, í Suður Dakota, til að heimsækja Jóhannes Björnsson mág minn, sem þar var Superintcndent of City Schools þá. ÞaSan fór eg til Minneota, og dvaldi þar einn dag. Kom svo heim á skírdag. Og þó ferS- in væri öll frábærlega ánægjuleg og uppbyggileg, var þó það bezt, að komast aftur heim. i IX. Niðurlagsorð. Margir hafa spurt mig að þvi, hvernig mér hafi litist á mig á þessum eða hinum stöðvunum, og hvernig muni vera að kom- ast þar af, borið saman við þaS, sem menn þekkja hér eystra;. Maður, sem ferðast eins og eg gerði, fer of fljótt yfir til þess að geta dæmt um þess háttar svo ábyggilegt sé. Færi eg að segja eitthvað í því efni, væri helzt að eg hefðf eftir eitthvað, sem eg hefði heyrt. En það er einkenni á allri ströndinni, a‘ð heimamenn láta vel af sínum stöövum og eru ekki að víla um annmarkana framan í ókunnuga. Þeir eru allir “boosters”. Færi eg þvi að hafa eftir þeim, væri þaS alt á einn veg. Geðj- ast mér þaS vel, að menn kunni áð meta þær stöðvar, er þieir búa á. Menn verða aS hafa trú á þvi plássi,. er þeir veruleg'a eiga að geta verið að gagni í. Annars finst þeim þaS, vera að vinna fyrir gig. — Eg vil hvorki telja menn á eða telja menn frá því að fara vestur að Kyrrahafi til aS setjast þar aS. F.n þeir sem sjálfir afráða aS skifta um bústaS, ættu helzt aS skoSa sig um áður en þeir flytja á nýjar stöövar, og vera ekki í of mikl'um flýti aS festa kaup í eign fyr en þeir eru farnir aS átta sig. Og alment er það, að þegar fólk er farið aS eldast, á það erfiSara meS aö slíta öll bönd og kunna viS sig í nýju mannfélagi. : Mér finst ferSin hafa opnaS augu mín fyrir þvi enn þá betur en áður, hve dýrðlegt þetta land er, sem viS búum i, og það án þess að minn heimareitur eöa heimaríki hafi fallið nokkuS í gildi. Svo þakka eg góðfúsum lesara fyrir þolinmæSina og vin- um mínum vestra fyrir góðar viötökur. (Sameiningin gerði mér þann grikk, að færa Mt. Rainier 100 milum nær Seattle. en.rétt er. Væri mér þægð í, að fjallið væri aftur sett fi réttan stað.)

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.