Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1922, Blaðsíða 17

Sameiningin - 01.09.1922, Blaðsíða 17
273 Öll nöfn eru auSvitaö eins og vera ber, í sinni réttu íslenzku mynd, þó ritað sé á erlendu máli. En einkennilegt er það, eins vel eins og við Íslendingar fylgjum fram þeirri kröfu aS okk- ar íslenzku nöfn fái aö halda sér óbreitt á erlendum málum, hve altítt þaö hefir þó veriö í íslenzkum ritum aö breyta útlendum nöfnum eöa íslenzka þau. Ætti þar viö aö breyta við aðra, eins og maöur vill að aðrir breyti við sig. , Hvernig farið er með efni, og að hve réttri niðurstöðu höfundurinn kemst um söguleg atriði og í dómum sínum um menn og málefni, kann eg ekki um að dæma. En það virðist sem sagan sé yfirleitt rituð hlutdrægnislaust, og að höfundur- inn hafi forðast að láta nokkurn tendens koma fram í þessu söguriti og hnekkja gildi þess. Hann er yfirlætislaus, og minnist þess í formálanum að framþróun hinnar íslenzku kirkju, algerlega aðskilin eins og að hún hafi verið frá hinum stærri og auðugri þjóðfélögum “muni áreiðanlega virðast mörgum fátækleg og mögur í samþandi við sögu annara deilda kirkjunnar.” En þegar horft er á allar ástæður, mun það, að kynnast islenzkri kirkjusögu miklu frekar vekja aðdáun hjá réttsýnum lesara, að þessi smáþjóð aldrei fleiri en 70—80,000 sálir, og stundum ekki nema um 50,000,) skuli hafa átt aðra eins kirkjusögu eins og raun ber vitni, önnur eins ljós og Guð- brand, Hallgrínt og meistara Jón, auk margra annara, og aðra eins þrautseigju gegnum hörmungar og neyð, eins og óbrotin frásagan ber með sér. Á myrkustu tímabilum sögunnar, þeg- ar svo mátti virðast, sem alt andlegt líf væri að deyja út, sendi Drottinn andrika sendiboða, sem kveiktu nýtt líf og ljós, svo lif kristninnar varðveittist frá kynslóð til kynslóðar, og ekki fær það dulist, hvílikan þátt íslenzk kirkja og íslenzka prestastéttin hefir átt i því, að viðhalda og efla menning þjóðarinnar. 1 Sagan rekur þráðinn alveg fram á síðustu tíð. Er þá einnig minst á kirkjusögu Vestur-íslendinga. Um dr. Jón Bjarnason farast höfundi orð á þessa leið: “Búinn eins og hann var frábærum hæfileikum til að koma á skipulagi, miklum starfskröftum. starfsþoli og sjálfsafneitun, hefir hann, sem skilyrðislaust sá, er mest kveður að af hinum útfluttu íslendin^- um, verðskuldað þakklæti þeirra og hollustu meir en nokkur annar, fyrir starf sitt,-sem alt miðaði að ákveðnu takmarki.” En auk áhrifa hans hér vestra. er kannast við hvilík vekjandi á- hrif umvandanir hans hinar alvarlegu við móðurkirkjuna hafi haft heima á ættjörðinni, og orðið til þess að koma róti á hina

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.