Sameiningin - 01.09.1922, Síða 24
280
inber fundur í kirkjunni og var þar margt fólk saman komið. Um-
ræðuefnið var kirkjulegur arfur vor og tóku margir til máls.
Mikillar gestrisni nutu prestarnir meSan þeir dvöldu á Gimli,
og voru'þeim heimboð haldin hjá þeim séra Sigurði Ólafssyni, Capt.
J. Stevens og Pétri kaupmanni Tergesen.
Embættismenn Prestafélagsins fyrir næsta ár eru: forseti, séra
Rúnólfur Marteinsson; skrifari, séra Sig. Ólafsson og féhirðir, séra
Sig. S. Christopherson.
Betel.—Fimtudagsmorguninn 31. ágúst heimsóttu prestarnir,
sem fundinn sóttu á Gimli, gamalmennaheimilið Betel og héldu þar
guðsþjónustu; stuttar ræður héldu þeir séra G. Guttormsson. séra
K. K. Ólafson, og séra Adam 'Þ.orgrímsson, en aðrir prestar önnuð-
ust um biblíulestur og bænagjörð. Voru guðsþjónustur haldnar á
þrem stöðum á heimilinu, til þess að alt heimilisfólkið gæti haft
þeirra not. Eét gamla fólkið í ljós mikla ánægju yrir þessari heim-
sókn, og ekki var prestunum síður ánægja að því að koma þangað
og sjá hve vel fór um þessa skjólstæðinga kirkjufélagsins og meö
hve mikilli reglu og myndarskap öllu er stjórnað á heimilir.u. 1
guðsþjónustulok afhenti forseti kirkjufél. Betel 300 doll. gjöf frá
Mrs. Guðrúnu Arnason frá Baldur, Man., sem dvalið hefir. þar á
heimilinu hátt á annað ár.
Framkvcemdarnefnd kirkjufélagsins hélt fund í Winnipeg 28.
og 29. ágúst, og tók þá til íhugunar þau mál, er henni voru falin á
síðasta kirkjuþingi.
Nefndin gjörði ráðstafanir til þess að láta binda allmikið af
sálmabókum, og enn fremur að gefa út bráðlega sálmakver handa
sd.skólunum; verða í því kveri, auk sálma og ljóða, guðsþjónustu-
form sd.skólanna, fræði Eúters hin minni og ýmsar leiðbeiningar
viðvíkjandi kenslunni.
Enn fremur var samþykt, að selja Minningarrit Jóns Bjarna-
sonar og Ben Húr með mjög niðursettu verði.
Samþykt var að styðja ungan mann til náms á prestaskóla á
komanda vetri.
Samkvæmt ákvörðun síðasta kirkjuþings, réð nefndin séra
Rúnólf Marteinsson til heimatrúboðsstarfs 6 mánuði, og ráðstafaðr
í samráði við hann starfinu fyrst um sinn.
Enn fremur gjörði nefndin ráðstafanir til þess að innkalla ó-
goldin loforð í sjóði kirkjufélagsins og safna fé til þess að standa
straum af því starfi, sem ákveðið hefir verið á árinu.
Rætt var um samvinnusamband við önnur kirkjufélög, helzt
kirkjufélag Norðmanna eða United Lutheran Church, og er forseta
og séra K. K. Ólafsyni falið að undirbúa það mál undir næsta
fund nefndarinnar.
Skrifari nefndarinnar þetta ár var kosinn séra F. Hallgrímsson.