Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1922, Síða 9

Sameiningin - 01.10.1922, Síða 9
297 Jochumsson, trúboöi; Sigurb. Á. Gíslason, cand. theol.; Sig. P. Sívertsen, prófessor; Ólafía Jóhannsdóttir, fröken; ASalbjörg Sigurðardóttir, frú; ÞórSur Sveinsson, læknir; H'ar. Níelsson, prófessor; Bjarni Jónsson, dómkirkjuprestur; Kristinn Daní- elsson, prestur; Árni Jóhannsson, bankaritari; FriSr. Friöriks- son, prestur; Páll V. G. Kolka, læknir; og Sigurður Stefáns- son, prestur, Vigur. Biskupinum hafði sérstaklega veriö boðin þáttaka, en hann sinti ekki því boði að ööru leyti en því, aö vera viöstaddur fyrsta fyrirlesturinn. Fyrir það er hann áfeldur af sumum, en af öSrum afsakaður. Af fyrirlestrunum fimm, viröist oss fyrsti fyrirlesturínn veigamestur. Prófessor Sig. P. Sívertsen gerir þar á stillilegan og skilmerkilegan hátt grein fyrir aðal-atriSum í trúfræöa-stefn- um nútímans. Munu þaS sumir nefna “nýja guSfræSi”, en íhaldssöm er sú ný-guðfræSi, sem prófessorinn þar lýsir, og naumast verður hann sakaður um, aS halla réttu rnáli í umsögn hans um þær stefnur, sem guSfræSin hef-ir tekiS í núlegri tíö. í erindi þessu er greinilega svaraö spurningum þessum þremur: 1. Hver eru aöaleinkenni nútimaguðfræöinnar ? 2. Hver er árangur af rannsóknum nútímaguðfræSinnar fyrir trúfræðina? 3. Hvert stefnir nútímatrúfræSin ? Annar fyrirlesturinn er eftir vin vorn séra FriSrik Friö- riksson. um K.F.U.M. í stuttu máli segir hann sögu þess á- gæta félags. MarkmiSi félagsins lýsir hann á þessa leið: “Mark- miðiS er Jesús Kristur. Hann er grundvöllurinn, sem félagiS hvílir á. Hann er þungamiðjan í öllu starfi, sem alt er miöaS við.” Dregur hann síðan glögglega aðallínur kenningarinnar í K.F.U.M. Er ])aö hinn gamli og góði rétttrúriaður og hi(n ev- angeliska trúfræði lúterskrar kirkju. — Áður hefir maöur veitt því eftirtekt, og sér þaS enn ibetur nú, að K.F.U.M. á íslandi. undir hinni góðu stjórn séra Fr. Fr., bindur sig á miklu ákveðn- ari hátt við kristilega trú, en Y.M.C.A. hér i Ameríku. Svo mun og vera víðast á NorSurlöndum. Hiér í Ameríku er félag- iS aðallega kristilegur félagsskapur til eflingar siðgæði, menn- ingu og íþróttum og til notalegrar heimavistar fyrir faranda og komandá félagsmenn. Þriöji fyrirlesturinn ;er um Stcfnuskrá Guðspckifélagsins og er eftir séra Jakob Kristinnsson. Lýsir höf. ])ví akveöiS og réttilega yfir, aS GuðspekifélagiS sé alls ekki trúfélag, og kenn- ingar þess eigi ekkert skylt við trúmál. Hvers vegna er þá

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.