Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.10.1922, Side 26

Sameiningin - 01.10.1922, Side 26
314 sveitir, hópar pílagríma, og allskonar ferSamenn aðrir áttu því sí- felt leiö um æskustöövar frelsarans. Jesús haföi því kynni af margskonar lýð í uppvextinum. Hann elskaði alla menn; kendi, að Guð væri faðir allra þjóða; kvaðst vera kominn til að frelsa, ekki Gyðingaþjóðina eina, heldur alt mannkynið; ávítaði Gyðinga h'vað eftir annað fyrir þjóðardramb þeirra og þröngsýni. Þetta eigúm við líka að læra af frelsaranum, að kynnast mannlífiinu í kring um okkur, læra að elska náungann og meta það, sem gott er í fari annara manna. Undir áhrifum þessum tók barnssál frelsarans heilögum þroska mannlegum, en guðseðlið kom betur og betur i ljós, eftir því sem hann óx og styrktist. Hvers konar barn hann var, sjáum við af sögu lexíunnar. Þeg- ar hann hefir lokið uppfræðslunni, sem áður var getið um, er honum leyft með foreldrum sínum til Jerúsalem. Helgidómurinn heillar huga hans; hann verður frá sér nuntinn þar í musteriinu, í viðræðunum við lærifeðurna. Hugurinn var allur hjá Guði. Og honum þykir undarlegt, að móðir sín skyldi ekki leita fyrst að sér þar, í helgi- dómi Drottins. Hann hafði þá þegar með fullri vituind gjört sér grein fyrir aðal markmiði lífsins—“að vera i þeim hlutum, sem míns föður eru.” Þó gleymir hann ekki skyldum sínum við for- eldrana, heldur fór heim með þeim “og var þeim hlýðinn.” Þetta tVent verður æskan ávalt að temja sér: að lifa í Guði og elska og heiðra foreldrana. Frelsarinn er því, eins og áður var sagt, fyrirmynd okkar í krístilegum þroska. Við eigum öll að þroskast eins og hann, “að vizku og vexti og náð hjá Guði og mönnum.” Eða, eftir orðutn nútíðarinnar: Þroskinn á að vera fernskonar, vitsmunalegur, lík- amlegur, trúarlegur og félagslegur. í öllum þessum greinum get- um við vaxið, með Guðs hjálp, ef við leggjum stund á að lifa í því, sem gott er og hreint og fagurt eins og frelsarinn. Til hliðsjónar: Sálm. 1; 19; Orðskv. 4; Jes. 11, 1. 2; 1. Sam. 3; Ef. 6, 1-3; Fil. 4, 8, 9; 2. Tím. 1. 5. — Sálmar: 122; 123;, 314; v » 6. LEXÍA: Jóhannes skírari og kenning hans—Lúk. 3, 7-17. MINNIST.: Gjörið iðrun, því að himnaríki er nálcegt— Matt. 3, 2. I sambandi við lexíuna ætti aö lesa Matt. 3, 4-7; Lúk. 3 (allan kapítulannj og Jóh. 1, 19-28. Jóhannes var af Guði kjörinn til að búa þjóðina undir komu Krists. Á verki þessu byrjaði hann árið 26 eða þar um bil, þrí- tugur að aldri. Tók hann þá að précfika úti í óbygðum Júdeu, ná- lægt ánni Jórdan, norðan og vestan við Dauðahafið. Kenning hans var ströng; hann átaldi lýðinn harðlega fyrir andvaraleysið og sjálfsþóttann; og þó þusti mannfjöldinn að honum hvaðalnæfa, bæði háir og lágir, út i óbygðina, til að hlusta á hann; en fjölda margir létu skírast af honum, til merkis um iðrun sína ('Matt. 3. 5. 6J. Á

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.