Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.10.1922, Qupperneq 27

Sameiningin - 01.10.1922, Qupperneq 27
315 3>essu getum viS séö, aö kraft.ur Drottins bjó í manninum og erind- inu; enda bar Jesús honum þann vitnisburð, að hann hefði verið “brennandi og skínandi lampi” fjóh. 5, 35J og að enginn maður honum meiri hefði fæðst í heiminn á dögum garnla sáttmálans í'Lúk. 7, 28). Annað eins mikilmenni þurfum við að virða fyrir okkur, til þess að sjá, hvað af honum er að læra. Þegar austurlenzkir konungar fóru í ferðalög, sendu þeir venjulega hraðboða á undan sér, til þess að boða fólkinu komu sína og láta greiða fyrir ferðum sínum á allan hátt. Menn þessir urðu að vera fljótir í förum og léttir á sér; máttu því ekki dúða sig upp eða ofþyngja sér með óþörfum farangri. Guðs orð líkir Jóhannesi við slíkan hraðboða. fSjá Lúk. 3, 4; 7, 27). Og hann fór dyggilega með erindi sitt; varpaði frá sér öllu, sem hefði getað lamað kraft- ana, veikt boðskapinn eða tafið fyrir. Hann var helgaður Guði frá bamæsku, bragðaði ekki vín, og lifði grandvöru lífi; því að synd og svall gjörir menn óhæfa til að flytja erindi Drottins. fSjá Lúk. 1, 15). Prestsembættið gekk í erfðir meðal Gyðinga; Jóhannes var þvi prestur, helgiþjónn, eins og faðir hans. En hann afsalar sér j>essu virðulega embætti, því að musteris-þjónustan hefði tafið fyrir því sérstaka erindi, sem hann átti að flytja, og svo hefði hann orðið að lúta hö'fuðprestunum, sem reyndust óvinveittir fagnaðarerindinu. Ekki fékk hann sér aðra atvinnu, heldur fór út í óbygðir, iklæddist einföldum og ódýrum fatnaði, lifði á vistum viltrar nátt- úrunnar og var því engum háður. Gat hann því hiklaust og djarf- lega rekið erindi Drottins, án þess að hugsa um óvinsældir eða at- vinnuspjöll. þSjá Matt. 3, 4). Eiginni vegsemd varpaði hann algjörlega burt úr huga sínum. Jóhánnes var ekkert, sagði hann, ekki svo mikið sem þjónn eða (boðberi, því síður spámaður; hann var ekkert annað en rödd, sem boðaði komu Drottins. Það eitt úr orðum spámannanna vildi hann tileinka sér ('Jóh. 1, 19-23). Og þegar hann var beðiran að gjöra grein fyrír sjálfum sér og sínu verki, þá talaði hann um frelsarann og hans verk ("sjá 15.-17. v. textans, og Jóh. 1, 25-28). Hugurinn var allur á erindinu sjállu1, kraftarnir óskiftir. Ekki veiktí hann boðskap sinn með útúrdúrum eða auka-atrið- um. Gekk beint að efninu. Margt var að í kirkjustjórn og þjóð- lífi Gyðihga, en rótin var að eins ein, syndin, vonzka hjartans; um bað aðal-mein var öll hans prédikun. Öxin verður ekki látin sníða burtu fáeinar greinar — hún verður lögð að rótinni, segir hann 79. v.). Og eins, þegar hann talar um frelsunina, þá varar hann við skottulækningu sjálfsþóttans' (8. v.); segir ekkert um útvortis umbætur ; bendir að eins á frelsarann (15. v., sbr. Jóh 1, 29, 30), Og ekki nema einn árangur vildi hann tala um: þann, að bera ávexti samboðna iðraninni. Þetta lærum við þá af Jóhannesi: Hann varpaði frá sér öll um hégóma, allri hugsun um eigin hag eða vegsemd, öllurn auka-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.