Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1914, Blaðsíða 5

Sameiningin - 01.04.1914, Blaðsíða 5
53 fordœmingar-orÖ upp yfir vonzkuuni. En alvarlega hugsandi menn vita vel, að fjandskaprinn gegn ]>ví, sem illt er, verðr að koma fram ekki aðeins í orðum. Vér verðum að spyrna á móti því með því að ganga á hólm við þa,ð með gjörvöllu lífi voru, gjörast þröskuldar í vegi þess, hvað sem það kostar, og kasta oss út-í skýlausa dauða-hættu til þess að stemma stigu fyrir framgangi þess. Þannig breytti Kristr. Hann heitti ekki ofbeldi, barði ekki vonzkuna niðr með ofbeldi, hefndi sín ekki í reiði. En liann sýndi, að hann var andstœðr liinu illa á þann ótvírœðasta hátt, sem hugsazt gat, — með því að ganga í hendr vondra manna og láta þá gjöra út-af við sig. Hann leyfði syndugum mönnum að svala á sér hatri sínu út-í æsar, og sýndi með því, að liann var al- gjörlega takmarkalaust andstœðr og fráhverfr vonzk- unni. Lengra getr heilagleikinn ekki komizt. Um það hefir þetta verið sagt: ,,í heilagleik guðs er algjör fjandskapr gegn vonzkunni, sem ekki getr auglýst sig fullkomlega með því einu að refsa, heldr verðr, til þess að auglýsa sig fyllilega, að leyfa hinum syndspillta vilja að koma fram á sér. Kristr liefir sjálfr hjálpað oss til að sjá, að það lilýtr svo að vera.“ Vér höfmn nú séð, að áfellisdómrinn óraskanlegi vfir syndinni og þá um leið fullnaðar-auglýsing guðlegs réttlætis, birtist í krossdauða Ivrists, í þeim skilningi, að syndin flettir þar ofan-af sjálfri sér, og enn fremr, að Jesús sýnir með því að láta lífið, að hann er í fyllsta skilningi henni andstœðr. En svo má líka líta á þetta frá enn einu sjónarmiði. Syndin er fordœmd á krossin- um sökum þess, að vér sjáum þar, hvernig þjáning er lienni óhjákvæmilega samfara samkvæmt ráðstöfun guðs. Hér mun mönnum, að ætlan minni fiunast, að mesta erviðleikanum sé að mœta. Eeynum þá að gjöra oss grein fyrir, í liverju sá erviðleiki í raun og veru er fólg- inn. Yér höfum reynt að gjöra oss grein fyrir því, livernig krossinn táknar algjöra fordœming vfir synd- inni. Og þá er ekki óeðlilegt, að menn spyrji: Hvernig getr á því staðiÖ ? Sé á annað borð syndin fyllilega for- dœmd, þá Iilýtr það að vera guð, sem kveðr upp þann

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.