Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1914, Page 30

Sameiningin - 01.04.1914, Page 30
78 um spekingssvip—. „og þaö eru 29 dagar í Febrúar; þeir voru ekki nema 28 í fyrra. LítiS þið á.“ Systkinin fóru öll að athuga þetta merkilega fyrirbrigöi á al- manakinu, sem hékk á veggnum. „En livað það er gaman!“ — sagöi Sigga. „Við ættum endilega aö halda upp-á þennan merkilega dag.“ „Eg sting upp.á, að við höfum picnic“—sagði Stina. „En sú vitleysa“—sagði Nonni; — „picnic um hávetr ! Við skul- um heldr reyna að hafa „turkey" í miödegisverð." „Nei, heyrið þið“—sagði Sigga—, „við skulum heldr reyna að gjöra eitthvað fallegt fyrir einhvern; — það fallegasta, sem okkr getr dottið í hug.“ „Látum svo vera“—sagði Tommi, heldr dræmt. „Eg ætla þá engri hurð að skella allan daginn. Fólkinu kemr það líklega eins vel og nokkuð annað.“ „Og eg ætla ekki að þræta við neinn“—sagði Nonni, og þóktist gjöra vel. „Og eg ætla ekki að stríða henni Siggu“—sagði fjörkálfrinn hún Stína litla. „Og eg ætla ekki að meina öðrum að leika sér að því, sem eg á“—sagði Sigga, og leit með hálfgjörðum áhyggju-svip þangað sem brúðurnar hennar voru; því henni var mjög sárt um þær, og yngri systkinin voru ekki alltaf sem mjúkhentust. ,,En þetta er allt saman eitthvað, sem við ætlum ckki að gjöra; við skulum reyna að finna eitthvað sem við œtlum að gjöra. — Þey! þarna kemr mamma.“ Morguninn eftir voru þau öll komin óvenjulega snemma á fœtr, því þeim fannst alveg ófœrt að láta nokk'uð af þessum merkilega „auka-degi“ fara til ónýtis. Og óðar en þau voru komin í fötin fóru fóru óvenjulegir atburðir að gjörast þar á heimilinu. Það var laugardagr. Og þegar mamma ætlaði að fara að kveikja upp eld til að baka, var eldiviðar-kassinn fullr af góðum þurrum eldivið, án þess hún hefði nefnt það við nokkurn. Hana hafði ekkert grunað, af því að Tommi hafði ekki skellt kjallara- hurðinni, þegar hann fór niðr til að kljúfa spýtrnar. Meðan brauðin voru í bökunarofninum, var Sigga á ferðinni með rykþurrkuna inní stofu; — Nonni og Stína þurrkuðu rykið af stólum og borðfótum. Þetta var lang-bezti laugardagrinn, sem mamma hafði lengi átt. „Það hlýtr að vera af því að þið börnin hafið verið svo dugleg að hjálpa mér“—sagði hún, þegar þau voru að borða kvöldverðinn; og systkinin hnipptu hvert í annað undir borðinu, og héldu, að enginn tœki eftir því. „Það virðist líka hafa legið svo vel á öllum í dag; eg hefi ekki heyrt eitt einasta ónota-orð. En að hverju eruð þið að hlæja? Hér hlýtr að vera eitthvert leyndarmál á ferðum.“ Svo sögðu þau henni alla söguna. Og Sigga bœtti við með miklum raunasvip: „Eg vildi óska, að við þyrftum ekki að bíða fjögur ár eftir næsta auka-degi.“

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.