Sameiningin - 01.06.1914, Blaðsíða 4
84
ræðu, og var þar á eftir sunginn sálmurinn nr.
616 (Guð blessi nxi þinn clauðadúr). Biskupinn
yfir íslandi, lierra Þórhallur Bjarnarson, bafði
með símskeyti falið séra Friðrik Friðrikssyni.
sem liér er nú staddur vestra, að vera málsvari
kirkjunnar á Islandi, og flutti séra Fr. Fr. ræðu í
umboði biskups. Þýzku lútersku prestarnir í
Winnipeg höfðu óskað þess, að einn úr þeirra
hiópi fengi að koma fram í nafni þýzk-lútersku
kirkjunnar, og flutti því séra M. Kalire stutt
ávarp. Voru þar næst lesin samhrygðarbréf og
símskeyti frá nokkrum söfnuðum. Sorgarathöfn-
in endaði í kirkjnnni með því, að sunginn var
sálmurinn nr. 458 (Höndin þín, drottinn, hlífi
mér). Svo mikill fjöldi fólks fylgdi líkinu til
grafar, að mælt er að það muni vera fjölmennust
líkfylgd í sögu Vestur-lslendinga. Yfir gröfinni
voru sungin vers úr sálminum “Alt eins og
blómstrið eina”. Séra Björn B. Jónsson las hið
venjulega greftrunarform og kastaði rekum á
leiðið, og var greftrun liins elskaða fyrirrennara
og föðurs í drotni, fyrsta verk hins nýja prests
prests Fyrsta lúterska safnaðar.
Raaiðurnar, sem fluttar voru í kirkjunni, og
stutt ágrip af æfi dr. Jóns Bjarnasonar, birtist
nú hér í bíaðinu, en búist er við að síðar komi út
sérstakt minningarrit um hinn mikla leiðtoga og
Upi?fcjUfflöðHlni Vætátlitmís 1 eiidinga.