Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1914, Blaðsíða 25

Sameiningin - 01.06.1914, Blaðsíða 25
105 rœða, er Bakkus æfinlega til þess búinn aS borga þá þakklætis- skuld, sem hann kann að hafa komizt i. AS hann standi í slikri skuld við stjórn vora hér í fylki er alsanna. Hún dugSi honum vel hér á árunum, er hann hafði veriS dœmdr af lifi hér í Manitoba, með lögum frá fylkisþinginu, og viS sjálft lá, aS hann yrSi háls- höggvinn fremr seremoníulítiS. Þá var þaS, aS stjórnarformaSr vor, meS ráSgjafaliSiS sér viS hönd og flokk sinn utan þings og innan á bak viS sig, gjörSi hiS makalausa áhlaup á herbúSir óvina Bakkusar og hreif hann úr hættu dauSans. Mun þaS áhlaup lengi í minnum haft sökum herkœnsku þeirrar, karlmennsku og snarræS- is, er þar voru sýnd. Hefði það mátt undarlegt heita, ef Bakkus karl hefSi engu launaS lífgjöfina. Enda kom alls ekki til neins slíks. Lífgjöfin hefir stöðugt verið að borgast síSan. 1 hverri kosninga-orrustu, síSan hann var hrifinn undan öxinni, hefir hann meS öllum tuskum sínum barist fyrir lífi þessarrar góSu stjórnar, sem vér nú höfum. Má þá segja, aS þessar kempur, stjórnin og Bakkus, hafi gefiS hvor annarri líf. Geta menn orðiS góðvinir fyrir minna, einsog hver maSr sér. Hreint ekki aS undra, þó fóst- brœSralagiS sé elskulegt. Til þess eru hinar sterkustu ástœSur á báSar hliSar. Einhver góSsamr náungi, sem ann ríki Roblins og Bakkusar, er nú í standi til aS kalla þetta óþarfa útúr-dúr. Þeir um þaS. Um þaS skal ekkert þráttaS aS sinni. Hverf eg því aftr aS, þar er frá var horfiS. Asgar Sveistrup, sá er eg nefndi, er danskr maSr. En hann mælir á íslenzka tungu, er kvæntr íslenzkri konu og býr í íslenzkri byggS. Er því vanalega talinn meS Islendingum. Til hans kom- um viS nál. kl. 2 um daginn. HöfSum þar beztu viStökur. StóS- um þar viS á annan klukkutíma. Kona Sveistrups heitir Ólína og er Tjörfadóttir, ættuð úr Eyrarsveit í Snæfellsnessýslu, myndarleg kona. Þau Sveistrup eiga átta börn á lífi, sum á unga aldri, en sum nokkuS stálpuS. Má furSa heita, hve vel þau hjón hafa þegar komiS sér þarna fyrir meS jafn-þunga fjölskyldu og hafa komiS þangaS efnalítil eSa efnalaus fyrir fáum árum. Þau hafa nýlega reist œSi-stórt og laglegt hús á landi sínu. Raunar er þaS ekki fullgjört hiS innra enn, en getr orSiS býsna myndarlegt hús, er því er lokiS. Engin borgun var þegin af okkr fyrir greiðann. Héldum viS svo þaSan eftir hvíldina norSvestr í SiglunesbyggS. KeyrSum viS fram-hjá skólahúsi þeirrar byggSar, komum viS hjá Birni bónda Arnfinnssyni, er býr rétt skammt frá skólahúsinu, og baS Kristján hann sjá um upphitun á húsinu fyrir guSsþjónustufund næsta sunnudag. LofaSi Björn bóndi þvi. Héldm viS svo þaSan sem leiS liggr norSr til Kristjáns Pétrssonar og komum þangaS í hálf. rökk'ri um kvöldiS. Var þar allt á takteini, er hafa þurfti og viS- tökur hinar ágætustu. BústaSr Kristjáns er alveg nyrzt í SiglunesbyggS, fast niSr

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.