Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1914, Blaðsíða 14

Sameiningin - 01.06.1914, Blaðsíða 14
94 liiminhvelfingin og þeir, sem hafa leitt marga til rétt- lætis, eins og stjörnurnar um aldur og æfi. Já, í nafni guðs kristni heima á Islandi ber eg þá fram hjartfólgna þökk til guSs yfir þessari kistu: Að foringjar veittu forvstu og fólkið kom sjálfviljuglega — fyrir það lofið drottin, sem liefir gefið oss þennan for- ingja! Lofi drottin, öll hin íslenzka þjóð; enn ljómar miskunn guðs yfir henni. Lofið drottinn, þér Vestur- Islendingar, því hann liefir gefiÖ yður mikið. Lofið drottin, þér saknandi ekkja liins látna ástvinar og fóstur- börn hans; þér liafið séð dýrð guðs í lífi og dauða ást- vinar yðar. Mikið liafið þér mist, en meira eigið þér samt, því minning hans, dæmi og fyrirbænir eigið þér og sæla samfundar-von. Lofa drottin, þú söfnuður guðs við kirkju þessa; guð gaf þér mikiÖ, og alt liefir hann gjört vel. Lofa drottin fyrir líf þessa trúa liirÖis, fvrir starf hans og á- vexti þess, og einnig fyrir það, að hann hefir leyst hann af hólminum, og kallað hann inn til dýrðar sinnar. Lofa þú drottin, sála mín, og alt livað í mér er hans heilaga nafn. 0g eg vil að endingu biðja þeirrar bænar, sem svo oft kom í huga minn, er eg heimsókti hann sjúk- an. Já, vér viljum biÖja: Drottinn! láttu þjón þinn í friði fara, en gef oss að deyja dauða hins réttláta og vort hið síÖasta verða sem hans! Gefðu oss náð þína, ó guð! til þess að vegsama þig með lífi voru og dauða, fyrir Jesúm Krist. Amen. ÁGRIP AF ÆFI SÉRA JÓNS BJARNASONAR, dr. theol. Eftir séra Rúnólf Marteinsson. Hinn 15. dag Nóvember-mánaðar, árið 1845, fæddist Jón Bjarna- son aS Þvottá í ÁlftafirSi, SuSurmúlasýslu, á Islandi. FaSir hans var Bjarni Sveinsson, stúdent frá BessastaSaskóla, siðar prestur. Var sú ætt úr FáskrúðsfirSi í sömu sýslu. Móðir Jóns var Rósa Brynjólfs- dóttir Gíslasonar frá Eydölum, alsystir séra Gísla doktors Brynj- ólfssonar, er prestur var á KolfreyjustaS í Reyðarfirði, og faðir Gísla skálds Brynjólfssonar. Rósa var áður gift séra Jóni Bergs- syni, er lengi var prestur á Hofi i Álftafirði og dó þar 16. Ágúst,

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.