Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1914, Blaðsíða 12

Sameiningin - 01.06.1914, Blaðsíða 12
92 meS gleði: Það er mikil sæmd fyrir liina íslenzku ])jóð. að hafa átt fyrir son þennan foring-ja, sem gnð gaf oss þegar mest lá á; en það er líka sæmd fyrir þjóðflokk vorn, að fólkið kom og skipaði sér í kirkjuraðirnar, þegar for- inginn kom fram, svo að upp gat risið vel skipað og fram- kvæmdasamt kirkjufélag, sem víst meira en nokkuð ann- að, hefir haldið uppi sæmd hins íslenzka nafns í þessarri stóru álfu, svo að það eigi druknaði í liinum mikla mann- straumi liins risavaxna liérlenzka menningarlífs. Já, fyrir þetta vil eg vegsama drottin á þessarri stundu og lofsyngja Israels gnði, honum, sem gjörir dásemdarverk- in. En svo vil eg líka leyfa mér að henda á við þessa kistu, á þessari átakanlegu skilnaðarstund, þegar ekki að eins þessi söfnuður er að kveðja sinn elskaða hirðir. heldur alþjóð Islendinga vestan hafs og austan einn sinn bezta og mikilhæfasta son, eg vil þá henda á, hvílíka ábyrgð vér höfum, sem nó eftir lifum. Yor ágæti foringi er fallinn, en hann féll með sigri og sæmd, hann vegsamaði gnð með lífi sínu og vann sig- ur, ekki í eigin krafti, heldur fyrir blóð lambsins, orð vitnisburðar síns og af því að hann elskaði ekki líf sitt svo að honum ægði dauði. Hann er nó kominn heim sjálfur, heim í hvíldina, sem hann aldrei unti sér meðan hann lifði á meðal vor, en minning hans hrópar til vor og hvetur oss og eggjar til þess að standa nó fast saman og berjast hinni sömu góðu baráttu, sem hann barðist, að gjöra fulla alvöru af því að vígja oss drotni frelsara vor- um með líkama, sál og anda, að halda hinu mikla og góða verki áfram guði til dvrðar og til blessunar fyrir vora þjóð. Minning hans kallar til skaranna að koma nó sjálf- boða og skipast undir merki Krists. Með engu getum vér lieiðrað minningu liins látna guðs þjóns eins og með því, að vér á þessum degi vildum gjöra guði vor heit og gefa oss lionum algjörlega, snóa oss til hans af öllu hjarta og taka að helga lionum alt vort líf og starf. — Og til yðar, þér ungu ,hrópar hin blessaða minn- ing leiðtoga yðar: Komið sjálfboða í heilagri prýði til guðs, og þá mun hann aldrei láta yður vanta foringja meðal vor til þess að leiða málefni sitt til sigurs. Við

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.