Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1917, Síða 31

Sameiningin - 01.02.1917, Síða 31
383 hreystiverkin, sem meira ber á og um er tala'5 landshornanna á milli.” “Þa5 segir þú alv'eg satt, afi,” svaraði Richard; “en mig langar til a8 vinna eitthvert af þessum miklu hreystiverkum sjálfur; mér myndi þá finnast, að eg væri meiri maður og eg yrSi miklu ánægöari á eftir.” Hann setti upp gamla stráhattinn sinn og lagði af stað út í skóg a5 sækja kýrnar. Hann fann þær allar, nema eina, uppáhaldskúna, sem hann átti sjálfur og haföi hugsað sér að selja seinna til þess að geta leitaö sér meiri mentunar. Hann rak hinar kýrnar heim og lagði svo af stað aftur til þess að leita að kvígunni sinni. Þegar hann kom að járnbrautinni, sá hanm nokkuð, sem fékk svo á hann, að hann náfölnaði. Einhver fantur hafði tekið upp nokkra járnbrautarteina, og hann var ekki lengi að átta sig á því, að ef ekki væri unt að gjöra eimreiðarstjóranum á fólksflutningalest- inni, sem átti að fara þar um að hálfum klukkutíma liðnum, aðvart nógu snemma, hlyti að verða þar hræðilegt járnbrautarlys. Það var eins og hann yrði fyrst alv'eg magnlaus við þessa til- hugsun. En hann náði sér fljótt aftur. Fjöldi fólks átti líf sitt undir snarræði hans, því enginn tími var til þess að sækja hjálp til annara. Hanni flýtti sér svo mikið sem hann mátti að safna saman hrúgu af þurrum greinum og láta hana á brautina; svo kveikti hann í hrúg- unni og bætti> alt af við greinum smámsaman, svo að þar varð mikið bál. Eoksins heyrði hanm til lestarinnar, og hann herti upp hugann og hljóp fram fyrir bálið eftir brautinni, veifaði hattinum sínum og hrópaði ens hátt og hann gat. Það vildi svo til, að eimreiðarstjórinn var aðgætinn maður, sem fann til þess að hann bar ábyrgð á mannslífunum mörgu, sem hon- um var fyrir trúað. Hann gætti undir eins að bálinui, sem drengur- inn hafði kynt, og blés eimblístrunni, til þess að gjöra starfsmönn- unum á lestinni aðv'art að vera til taks, ef á þyrfti að halda. Eestin nam staðar fáeina faðma frá bálinu og fólkið þaut út til að gremslast eftir því, hvernig á þessari töf stæði ; og það þarf ekki orðum að því að eyða, hve mikið því varð um, þegar það sá hvernig það hafði verið hrifið úr heljar greipum. Og ekki verður með orðum lýst þakklætis tilfinningum þess til piltsins unga, sem hafði verið verk- færi í Guðs hendi til þess að afstýra bráð.um bana fjölda fólks. “Gjörum Guði þakkir!” sagði gamall prestur, sem var einn af farþegunum, og þegar í stað krupu menn og konur og börn þar hjá brautinni og þökkuðu af hrærðum hjörtum föðurnum miskunnsama á himnum fyrir það, að hann hafði frelsað þá úr dauðans hættu. Pólkið þyrptist kring um Richard og tók í hönd hans og þakk- aði honum fyrir snarræðið og dugnaðinn, sem hann hafði sýnt. “Til hvers langar þig mest af öllu, drengur minn?” spurði prestur- inn um leið og hann tók í hönd drengsins.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.