Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.08.1917, Qupperneq 10

Sameiningin - 01.08.1917, Qupperneq 10
170 markinu að sum Guðs börn liafa komist hér í lífi. Vér höfum óefað öll kynst á æfileiðinni einhverjum þeim mönnum eða konum, sem lifðu svo lireinu, fögru og kær- leiksríku lífi, að oss hefir fundist sem það væru lielgir menn og helgar konur. Hin fegurstu dæmi, sem vér þekkjum, sýna oss, hversu nærri takmarkinu má komast hér í lífi, og þau dæmi eru oss til uppörvunar. Þetta getuin vér einnig. Svona líkir Guði getum vér orðið. Vér megum ekki draga úr viðleitni vorri með því að telja sjálfum oss trú um, að vér getum ekki verið góðir og heilagir. Vér getum miklu meira en vér viljum, vér getum miklu meira en vér reynum. Iværleikans faðir er fús að hjálpa. IJm að gera að vilja, láta sig langa, biðja Guð og treysta honum. IJm að gera að elska Guð hvern dag meira en daginn áður. Um að gera að láta Drottln Jesús leiða sig. Jú, Guði sé lbf, það er unt jafnvel hér í lífi að klífa liátt upp fjallið. Það er unt að komast svo hátt, að fullkominn friður veitist manni, svo hátt að ekki sé eftir nema herzlumunurinn svo komið sé upp á hæðsta tindinn, þegar dauðinn seinast kemur, réttir manni hend- ina og lyftir manni upp í faðm Guðs, og leiðir mann inn í þann heim, sem svo er Guði nærri, að syndin getur ekki fylgt manni þangað. Og þá er takmarkiuu náð til fulls, og vér verðum fullkomnir eins og faðir vor á hlmnum er fullkominn. Þetta er markmið kristins manns. Það er trúin á Jesúm Krist og kraftur hans, sem megnar að leiða oss að markmiðinu. Trúin — þráin eftir Guði, bænin — “hjálpa þh mér, herra”, það er aflið, sem styrkir oss til óaflátanlegrar viðleitni til þess að verða líkir Guði. Upp til Guðs! Upp til þín, eilífi faðir! Eins og þú ert, svo vil eg vera. Þetta er já og amen kristins manns. Trúmál þjóðar vorrar liafa farið forgör.ðum fyrir þref og þjark um guðf ræði. Ef vér vildum nú sameinast allir um Jesúm og láta hann kenna oss að verða sjáifir Guði líkir, þá myndum vér verða allir sanntrúaðri og rétt- trúaðri, þarfari og helgari menn. Ó, að það orð liljómi sem þruma og ljómi sem leiftui út um hverja sveit og inn í sérhvern dal, út um hverja bygð og inn í liverja borg, þar sem “ættmenn vorir eftir

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.