Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1917, Blaðsíða 26

Sameiningin - 01.08.1917, Blaðsíða 26
186 vill Sameinmg-m afbiöja, þótt hún í þetta skifti birti sögu af einum, í sambandi við hugsunina, sem útaf honum vaknaði. Draumar eru auðvitað oft merkilegir á ýmsan hátt; verið getur, að þar komi i liós einhver hulin öfl sálarlífsins, sem enn eru al-ókönnuð; en hins vegar rikir víða megn oftrú á allskonar draumórum, og ýms liindur- vitni leiðinleg í sambandi við draumaráðningar, sem blað vort vill ekki gefa undir fótinn. f?ykir því bezt að sneiða hjá þeim efnum, nema alveg sérstaklega standi á, og ræða heldur það, sem uppbyggi- legra er í heimi trúarinnar. ■----—o--------- KIRKJULEGAR FRÉTTIR. Deild þessa annaat aéra Kriatinn K. ólafsson. Séra G. Norbeck, faðir Norbecks ríkisstjóra í Suður-Dakota, andaðist í Tyler, Minn., 17. Júlí síðastl. Hann var sænskur að ætt en þjónaði norskum söfnuði í Hauge-sýnódunni þar til fyrir nokkr- um árum, að hann lét af prestskap. Hann v'ar á áttræðisaldri, er hann dó. --------o--------- St. Olaf College i Northfield, Minn., byrjar ekki skóla-ár sitt í ]?etta sinn fyr en 2. Október. •-------o--------- Innan vébanda. lútersku kirkjunnar í Bandaríkjunum eru níu diakonissu—JkvendjáknaJ heimili og 267 diakonissur. Vinna þessir kvendjáknar að kirkjulegu líknar- og hjúkrunarstarfi, ýmist á líknarstofnunum kirkjunnar, eða úti á meðal safnaðanna. Ýmsir stórir söfnuðir í stærri borgunum hafa kvendjákna í þjónustu sinni til að vinna að líknarstarfi heima fyrir. Alþjóðar félag lúterskra ritstjóra hélt ársfund sinn í Rock Island, 111., 12.-13. Júlí síðastl. Félag þetta, sem var stofnað fyiir örfáum árum, er að vinna þýðingarmikið starf í þá átt, að draga saman hugi allra lúterskra kirkjudeilda í landinu. Er félag þetta eitt tákn þess, hve almennur áhugi er að verða á því, aö koma á sameiningu alstaðar, sem unt er, án þess að vera ótrúr sannleikanum. Hið nýja stóra kirkjufélag Norðmanna hér í landi, sem mynd- aðist í sumar, rekur strúboð í Kína, Madagascar, Suður Afríku, Alaska, og á meðal Indíána í Wisconsin. Á þessum trúboðssvæðum eru 618 trúboðar starfandi. ------o------ Prestaskóli norsk-lútersku kirkjunnar í Ameríku hefir 10 fasta kennara. Eru það að sögn fleiri kennarar en við nokkurn annan lúterskan prestaskóla í heimi.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.