Fréttablaðið - 04.04.2011, Side 8
4. apríl 2011 MÁNUDAGUR
Beina brautin
Bjóðum fyrirtækjum aðstoð við að undirbúa og skila inn
gögnum vegna Beinu Brautarinnar. Sem er úrlausnir í
skuldamálum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Már Ástþórsson
viðskiptafræðingur í síma 696-5310 eða á netfanginu
gudmundur@beinabrautin.com www.beinabrautin.com
… og passar með öllu
www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Það er enginn
að snuða
Breta og
Hollendinga
ADVICE hópurinn telur hagsmunum Íslands best borgið með því að fella
Icesave-lögin þann 9. apríl. Auglýsingar og annað starf hópsins er greitt með
frjálsum framlögum og vinnuframlagi sjálfboðaliða. Tölvupóstur: advice@advice.is
www.advice.is
Með íslensku neyðarlög-
unum voru hagsmunir inni-
stæðueigenda í Bretlandi
og Hollandi tryggðir mun
betur en tilskipun ESB um
innistæðutryggingar fer fram
á: Í stað 674 milljarða munu
þeir fá 1175 milljarða.
En þeir vilja samt meira.
Að við tökum ábyrgð á
þrotabúinu og borgum
líka vexti. Okkur ber engin
skylda til að verða við því,
hvorki lagaleg né siðferðileg.
Greiðsla til Breta
og Hollendinga
ESB
tilskipun
674
1.175
Óvíst
Ef Nei Ef JÁ
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI FRÓÐLEIKUR
Meiri Vísir.
FRÉTTAVIÐTAL: Stefán Einar Stefánsson, nýr formaður VR
Stefán Einar Stefánsson
guðfræðingur mun taka
við starfi formanns VR,
eins öflugasta verkalýðs-
félags landsins, seinna í
mánuðinum. Hann varð
hlutskarpastur sjö fram-
bjóðenda í formannskjöri
félagsins en úrslit voru
kynnt í síðustu viku.
Stefán Einar Stefánsson segist
hlakka til þess að hefja störf sem
formaður en honum hefði ekki dott-
ið það í hug fyrir svo löngu síðan
að hann hæfi störf á þessum vett-
vangi. „Síðastliðið haust leituðu til
mín einstaklingar varðandi fram-
boð sem höfðu miklar áhyggjur
af stöðu mála í VR. Þetta var fólk
sem þekkti til starfa minna fyrir
félagið á árinu 2009 þegar ég var
fenginn til að aðstoða við að setja
siðareglur fyrir félagið. Ég neit-
aði þessu nú fyrst, ég var að sinna
verkefnum af öðrum toga og hafði
aldrei leitt hugann að verkefnum
á borð við þetta. Svo var haldið
áfram að þrýsta á mig og ég fór þá
að glöggva mig meira á innri mál-
efnum félagsins. Í kjölfarið tek ég
ákvörðun um að bjóða mig fram og
hellti mér bara í þessa baráttu eins
og aðrir,“ segir Stefán en hann und-
irbýr sig þessa dagana fyrir verk-
efnin fram undan.
Deilur innan stjórnar og á
skrifstofu VR hafa skyggt á störf
félagsins á síðustu misserum og
segir Stefán það fyrsta verkefni
sitt að tryggja að það verði starfs-
friður í félaginu. „Slíkur starfs-
friður felst ekki í því að allir séu
sammála eða að einn maður ráði
öllu heldur frekar að mál séu ætíð
sett í ákveðinn farveg sem tryggi
vandaða og yfirvegaða úrlausn
þeirra viðfangsefna sem félagið er
að fást við. Ég er viss um það að
allir þeir sem að félaginu koma eru
til í þessa vinnu,“ segir Stefán. En
hvaða önnur mál hyggst hann setja
á oddinn? „Þegar starfsfriður er
tryggður taka við stór verkefni
eins og að berjast gegn því órétt-
læti sem er óútskýrður launamun-
ur kynjanna. Við þurfum jafnframt
vonandi að kynna nýjan kjarasamn-
ing og fá samþykktan. Við þurfum
að hlúa að okkar félagsmönnum
sem hafa orðið fyrir atvinnumissi,
við þurfum að koma því fólki út á
vinnumarkaðinn aftur. Það er sam-
hangandi við þennan aðgerðapakka
ríkisstjórnarinnar sem við höfum
verið að skoða í samstarfi við Sam-
tök atvinnulífsins. Þar er mikil
áhersla lögð á þau atriði sem lúta
að atvinnusköpun og fjárfestingu í
landinu,“ segir Stefán.
Lítil virkni áhyggjuefni
Það er óhætt að segja að það hafi
víða gustað um þar sem Stefán
Einar hefur komið að málum og var
hann því spurður hvort hann væri
vel til þess fallinn að tryggja sætt-
ir í VR. „Í frægu ljóði eftir Davíð
Stefánsson segir: „Þeir sem stríði
vilja verjast, verða stundum fyrst
að berjast.“ Þeir sem hafa þurft
að takast á við fólk geta, að ég tel
betur, komið inn á átakasvæði og
stillt til friðar. Ég held að það hefði
ekki verið nein lausn fyrir VR að
velja til forystu algjörlega óum-
deildan mann sem aldrei hefði látið
þannig til sín taka að menn hefðu á
því einhverja skoðun.“
Kjörsókn í formannskosningun-
um í VR var einungis rúm sautj-
án prósent og segir Stefán það
vera áhyggjuefni að fólk vilji ekki
hafa áhrif á þetta mikilvæga félag.
Þetta hafi hins vegar verið vanda-
mál lengi.
Ósanngjarnar kjaftasögur
Stefán Einar hefur síðustu miss-
eri setið í stjórn Sambands ungra
sjálfstæðismanna sem hefur boðað
mikinn niðurskurð ríkisútgjalda
og til að mynda lagt til að Vinnu-
eftirlit ríkisins verði lagt niður.
Stefán segir þær tillögur ekki lýsa
sínum stjórnmálaskoðunum. „Ég
hef tekið þátt í starfi stjórnar SUS
ásamt tugum annarra einstaklinga
sem hafa mjög ólík viðhorf. Ég hef
aldrei skilgreint sjálfan mig sem
frjálshyggjumann heldur hef ég
verið mjög gagnrýninn á þá hug-
myndafræði. Ég gagnrýndi þessar
tillögur í mörgum liðum en þarna
urðu mín viðhorf einfaldlega ekki
ofan á,“ segir Stefán.
Í aðdraganda formannskjörsins
var Stefán ásakaður um að hafa
afritað kjörskrá félagsins sem er
andstætt kosningareglum. Hann
hefur einnig verið sagður hafa sent
sms skilaboð á þá félagsmenn VR
sem flokksbundnir eru í Sjálfstæð-
isflokknum. Stefán segir þessar
ásakanir fráleitar. „Þessar sögur
eru hluti af þeirri ófrægingarher-
ferð og þeim vinnubrögðum sem
það fólk sem hefur skaðað þetta
félag hvað mest notar. Það hermir
upp á fólk hluti sem eiga ekki við
rök að styðjast og ég bara frábið
mér umræðu um svona mál. Kær-
unni var auðvitað vísað frá og átti
ekki við rök að styðjast. Hvað þess-
ar sögur um sms sendingar varð-
ar þá segi ég það eitt að einu sms
skilaboðin sem ég sendi voru til ein-
hverra tuga vina minna undir lok
kosninganna.“
Engin lausn að velja
óumdeildan mann
STEFÁN EINAR Stefán er 27 ára gamall guðfræðingur sem hefur einnig lagt stund á
nám í lögfræði og siðfræði. Hann hefur undanfarið starfað sem framkvæmdastjóri
Hins íslenska Biblíufélags. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Magnús Þorlákur
Lúðvíksson
magnusl@frettabladid.is