Fréttablaðið - 04.04.2011, Qupperneq 10
4. apríl 2011 MÁNUDAGUR
Húsið er á tveimur hæðum, samtals um 1.219 fermetrar. Þar er í dag rekið fullbúið hótel á vegum
leigutaka.
Á fyrstu hæð er álma með 8 gestaherbergjum, rými fyrir heilsurækt með heitum pottum og 30
manna fundarsal.
Inn af fundarsal eru að auki 4 gestaherbergi og nokkur aðskilin þjónusturými.
Á annarri hæð er álma með 8 gestaherbergjum, ráðstefnusal sem rúmað getur allt að 60 manns,
eldhús, þjónusturými, matsalur sem þjónað getur um 60 manns, sem og stór vistleg setustofa og
bar. Inn af eldhúsinu eru 3 gestaherbergi. Öll gestaherbergi eru með sér baðherbergi og sturtu.
Ástand hússins er mjög gott jafnt innan sem utan og aðkoma og umgjörð glæsileg.
Húsið stendur á 9.350 fermetra leigulóð, möguleiki er á stækkun lóðar upp í 14.000 fermetra.
Húsnæðið verður til sýnis áhugasömum þriðjudaginn 5. apríl kl. 13.00 – 16.00.
Nánari upplýsingar gefa eftirfarandi starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur:
Hannes Frímann Sigurðsson, sími 516-6690
Ólafur Þór Leifsson, sími 617-6334
Kauptilboðsblað og sölulýsingu er hægt að sækja á vefsíðu Orkuveitunnar.
Kauptilboðum skal skila til Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík fyrir kl. 13.00 fimmtudaginn 14.
apríl 2011.
Til sölu
Ef viðunandi tilboð fæst:
Starfsmannahús Orkuveitu Reykjavíkur að Nesjavöllum
HJÁLMAR JÓNSSON Formaður Blaðamannafélags Íslands segir tímaskekkju að
Stjórnarráðið reyni nú eftir hrunið að auka leyndarhyggju með nýju frumvarpi um
breytingar á upplýsingalögum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STJÓRNMÁL „Þetta er afturför því
þarna er verið að fjölga en ekki
fækka undanþágum frá því sem
er í lögunum frá 1996,“ segir
Hjálmar Jónsson, formaður
Blaðamannafélags Íslands, um
frumvarp um breytingar á lögum
um upplýsingamál.
„Það er tímaskekkja núna
þegar menn ættu að draga lær-
dóma af hruninu að auka leynd-
arhyggjuna í stað þess að sníða
agnúana af lögum sem að mörgu
leyti hafa reynst vel,“ bætir
Hjálmar við.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra mælti fyrir frumvarpinu
sem nú er til meðferðar hjá alls-
herjarnefnd Alþingis. Hjálmar
ásamt Sigurði Má Jónssyni, vara-
formanni BÍ, segja í umsögn fyrir
hönd félagsins til nefndarinnar að
lagasmiðirnir virðist ekki hafa
trú á eigin tillögum.
Í greinargerð sem fylgir frum-
varpinu segir að sterk rök hnígi
að því að „einmitt upplýsing-
ar af þessu tagi eigi ríkt erindi
við almenning“ en síðan að nið-
urstaðan hafi „engu að síður“
orðið sú að leggja til lögfestingu
viðkomandi reglu. „Hér verð-
ur ekki séð að hugur fylgi máli
og eðlilegt að beina löggjafan-
um inn á þá braut sem hugur
og hjarta segja honum!“ segir
Blaðamannafélagið.
Meðal þess sem BÍ gerir
athugasemdir við er nýtt ákvæði
um að undanskilja frá aðgangi
almennings gögn sem ráðherrar
afla frá sérfróðum aðilum til að
undirbúa lagafrumvörp.
„Hér má spyrja hvort eðlilegt sé
að leynd hvíli yfir hvaða gögn lög-
gjafinn notast við,“ segir í umsögn
Hjálmars og Sigurðar.
Þá kemur fram að BÍ telji alltof
víðtæka heimild felast í frumvarp-
inu „til þess að loka inni vinnu-
gögn“. Þannig geti stjórnvöld mjög
takmarkað upplýsingastreymi.
„Í því sambandi má vitna til
nýlegs blaðamáls, Árbótarmálsins,
þar sem mikilvægar upplýsing-
ar um afgreiðslu og málsmeðferð
komu fram í tölvupóstssamskipt-
um. Ekki verður annað séð en að
þarna sé verið að loka á afhend-
ingu slíkra gagna,“ er ein ábend-
ingin frá Hjálmari og Sigurði.
Árbótarmálið sem Fréttablaðið
sagði frá fjallaði um hvernig ráð-
herra og þingmenn beittu sér á
bak við tjöldin í máli sem ekki var
á þeirra forræði.
Síðan er ítrekað í umsögn BÍ að
fráleitt sé í ljósi reynslunnar að
undanþágum frá lögunum sé fjölg-
að: „Of mikið upplýsingastreymi
hefur ekki staðið vandaðri stjórn-
sýslu hér á landi fyrir þrifum.
Þvert á móti.“ gar@frettabladid.is
Óttast aukna
leynd með
nýjum lögum
„Of mikið upplýsingastreymi hefur ekki staðið
vandaðri stjórnsýslu hér á landi fyrir þrifum,“ segir
í umsögn Blaðamannafélags Íslands sem gagnrýnir
nýtt frumvarp um breytingar á upplýsingalögum.
SAMGÖNGUR Meðalumferð um Bol-
ungarvíkurgöng er tæpum 4 pró-
sent meiri það sem af er ári en
umferð um Óshlíðarveg á sama
tímabili í fyrra. Þetta kemur fram
á fréttavefnum BB.is.
Þar segir einnig að þessa þrjá
mánuði hafa að jafnaði farið 657
bílar um Bolungarvíkurgöng á
degi hverjum en um Óshlíðarveg
í fyrra fóru 624 bílar á dag.
Meðalumferð um Héðins fjarðar-
göng fyrstu fimm mánuðina frá
opnun, var 382 bílar á sólarhring
og er því umferð um Bolungarvík-
urgöng 70 prósentum meiri en um
Héðinsfjarðargöng. Frá þessu var
einnig greint á vikari.is. - rat
Töluvert fleiri aka um Bolungarvíkurgöng en Óshlíð:
Umferð jókst um 4%
Hér má spyrja hvort
eðlilegt sé að leynd
hvíli yfir hvaða gögn lög-
gjafinn notast við
ÚR UMSÖGN
BLAÐAMANNAFÉLAGS ÍSLANDS
VEGURINN UM ÓSHLÍÐ MYND/BRYNJAR GAUTI
Frummælendur:
Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður og fulltrúi samninganefndar Íslands
Dóra Sif Tynes, lögmaður og fulltrúi Áfram hreyfingarinnar
Jón Helgi Egilsson, verkfræðingur og fulltrúi Advice hreyfingarinnar
Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík
Ragnar Árnason, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands
Gylfi Zoëga, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands
Að loknum framsöguerindum taka við pallborðsumræður.
Frummælendur og Guðmundur Björnsson, verkfræðingur hjá GAMMA
Aðgangur án endurgjalds, skráning fer fram á vi.is
Opinn upplýsingafundur þriðjudaginn 5. apríl
klukkan 16-17.30 á Hilton Reykjavík Nordica
ICESAVE JÁ/NEI
ÁHRIF Á EFNAHAGSÞRÓUN